Núna rétt í þessu var verið að draga í undanúrslit Carling Cup. Drógumst við gegn Arsenal / Liverpool ( eiga eftir að leika ) , leikið er heima og að heiman og eru leikdagar 9/10 janúar og seinni leikur svo 23/24 janúar.
Þar sem fresta þurfti leik Liverpool og Arsenal, og ég held að leikdagur fyrir þann leik sé í kringum 9.jan, þá lítur út fyrir að leikdagur á fyrri leiknum gegn öðru hvoru liðinu verður færður til.
Drátturinn fyrir undanúrslitin er svohljóðandi. Lið talið upp á undan leikur heimaleikinn fyrst.
Wycombe Wanderers – Chelsea
Tottenham Hotspur – Arsenal / Liverpool






