Það var tilkynnt í dag að Tom Huddlestone hafi skrifað undir nýjan samning í dag. Þetta þýðir að hann er samningsbundin félaginu til 2011. Það er óhætt að segja að þetta séu gleði tíðindi fyrir alla Spursara því drengurinn hefur farið á kostum í undanförnum leikjum. Jol sagði við þetta tækifæri "að Tom væri eitt mesta efni í enska boltanum í dag og því væru þetta mjög góðar fréttir bæði fyrir klúbbinn og Tom. Það mun hjálpa honum að þroskast sem leikmaður að spila með reyndum landsliðsmönnum hjá Tottenham". Tom lét hafa eftir sér "að hann nyti þess að spila með Tottenham og hann væri ánægður með hvernig hlutinrnir hefðu þróaðst, einnig að hann væri virkilega ánægður með nýja samninginn og hann hlakkaði til að leika með liðinu í framtíðinni og hann ætlaði að standa sig vel.






