Tottenham vann sinn 12 heimaleik í röð í öllum keppnum og 7 í deildinni í gær þegar þeir lögðu Aston Villa 2-1. Defoe gerði bæði mörkin eftir sendingar frá Berbatov. Defoe er þar með búin að gera 50 mörk fyrir okkur í öllum keppnum. Hann er næst markahæðstur núverandi leikmanna aðeins Robbie Keane er með fleiri eða 67. En að leiknum. Jol gerði eina breytingu á liðinu sem tapaði á Þorláksmessu gegn Newcastle. Defoe tók sæti sitt en Murphy fór á tréverkið. Við vorum betri aðilinn á vellinum mest allan leikinn en eins og oft áður voru menn að taka rangar ákvarðanir eða nýta ekki þá möguleika á sendingum sem samherjar buðu uppá svo sóknir runnu út í sandinn. Ghaly gerði sig sekan um að vera of seinn að senda boltan og lenti því oft í því að boltinn var tekinn af honum. Hann var reyndar ekki einn um þetta. Defoe var einnig í nokkur skipti of eigingjarn og sendi ekki boltan á betur staðsettan samherja. Það má þó segja að leikmenn Aston Villa voru verri hvað þetta varðar en okkar menn.
En þannig er nú með góða framherja að þeir geta eitt heilum leik nánast í ekki neitt og komið svo með sniltar takta í nokkrar sekúndur sem skilur á milli sigurs og taps. Það var akkúrat það sem Defoe gerði. Berbatov sem var mjög góður í dag átti á 58. mínútu frábæra stungu inn á Defoe sem smell hitti hann í markið fram hjá markverði Aston Villa. Nítján mínútum seinna sparkaði Robinson út. Boltinn barst fram á Berbatov sem nikkaði boltanum áfram með skalla inn á Defoe sem var við vítateygslínuna. Hann tók við boltanum á frábæran hátt og sendi hann svo í netið óverjandi fyrir markmanninn.
Strax eftir markið gerðist það sem við höfum því miður séð of oft, að leikmenn okkar tóku úr gír. Villa menn komu eins og sært dýr enda stutt eftir og þeir höfðu engu að tapa. Eins hafa þeir vitað að það væri viðbúið að við gæfum eftir í þessari stöðu. Þetta kostaði mark sem Barry gerði á 81. mínútu en í mínum huga var hann brotlegur því til að skýla boltanum, sem datt fyrir fætur hans í teignum, setti hann löppinu út og feldi þar með Dawson sem var að fara fram úr honum og hefði tekið með sér boltan í leiðinni. Eftirleikurinn var auðveldur fyrir Barry. En þetta kom ekki að sök að því leyti að við héldum út. Næst er erfiður leikur á WHL þann þrítugasta gegn Liverpool sem tapaði í gær. Þeir hafa þrem stigum meira í næsta sæti fyrir ofan okkur og því er um sex stiga leik að ræða.
Vonandi færir það okkur lukku að tveir íslenskir Tottenham strákar verða "mascot" á leiknum.
Liðið: Robinson, Lee, King, Dawson, Chimbonda, Steed, Zokora, Hudd, Ghaly (Murphy 69), Defoe (Davenport 87), Bergatov. Varamenn: Cerny, Ekotto, Ziegler.






