Á laugardaginn fyrir leik Tottenham og Liverpool munu tveir gallharðir Tottenham strákar ganga inn á White Hart Lane leiðandi tvo af leikmönnum Tottenham. Þetta eru þeir Óskar og Jón Torfi Jónssynir. Jón Torfi er 11 ára og Óskar 9 ára. Það þarf ekki að taka það fram að foreldrar þeirra eru miklir Spursarar en gefum pabbanum Jóni Berg Torfasyni orðið: Við mætum á völlinn 2 1/2 tíma fyrir leik. Förum í svokallaða Family lounge,
þeir fá gallan, skipta um föt og fara svo í göngin að hitta leikmenn þegar að þeir koma til búningsherbergja, fá eiginhandaráritanir og að því loknu koma þeir aftur í Family lounge. Við foreldrarnir chillum í veitingum á meðan 🙁
Rétt fyrir leik fara þeir aftur niður og er þá raðað á leikmenn í stærðarröð þ.e. sá minnsti fyrst osf.
Labba inná völlinn heilsa og sú rútína þar, hlaupa með Chirpy lukkudýrinu um norðurenda vallarins og er svo fylgt aftur til sætis. Við sitjum þarna í West stand lower sem er sömu megin og leikmennirnir ganga inn. Í hálfleik getum við farið aftur í family lounge og þegið veitingar.
Þeir fá senda mynd með sér af liðinu og skírteini um að hafa verið mascot á þessum leik svo fá þeir náttúrulega að eiga gallan sem þeir labba inná í
Spurs eiga möguleika á að landa 13 heimasigri sínum þarna í röð í öllum keppnum og vonandi færa þeir liðinu lukku og njóta dagsins.






