Yfirlit: Hluti III

0
732

Nú er komið að síðasta hlutanum í yfirferð minni yfir tímabilið hingað til. Í þessum hluta fer ég yfir sóknarmennina.

Dimitar Berbatov A+
Tottenham eiga alvöru markaskorara. Í fyrsta skipti í langan tíma á félagið heimsklassa sóknarmann sem veldur hvaða varnarmanni sem er áhyggjum. Berbatov átti ekki góða byrjun í enskum fótbolta en um leið og fyrstu mörkin fóru að detta inn hefur hann verið frábær, líklega besti leikmaður Spurs á tímabilinu hingað til. Hann hefur allt; sterkur í skallanum, heldur boltanum vel, sterkur 1 á móti 1 og klárar færin sín vel (Defoe gæti lært af honum!). Dimitar hefur fest sig í sessi sem fyrsti sóknarmaður liðsins og nú er bara spurning hvað sé besta parið frammi. Af því sem ég hef séð hingað til verð ég að segja að Keane-Berbatov sé búið að virka best, en Defoe er að reyna að breyta því í augnablikinu.

Robbie Keane B+
Robbie er bara búinn að vera Robbie. Hann hefur átt frábæra leiki og einnig frábæra kafla í leikjum þar sem enginn getur haft taum á honum. Hann var frábær í sigurleiknum gegn Chelsea og sömuleiðis í fyrri hálfleiknum gegn Sheff. Utd. Robbie er einn vinsælasti leikmaður félagsins (ef ekki sá vinsælasti) og ekki er ólíklegt að hann eigi mörg ár eftir hjá félagiu. Hann lenti þó í afar óheppilegum meiðslum í leik gegn Boro um daginn sem hafa haldið honum frá keppni yfir jólin.

Mido C
Mido var keyptur endanlega í ágúst og bjóst maður við að hann myndi taka upp þráðinn frá síðasta tímabili. En ýmislegt hefur sett strik í reikninginn; meiðsli, góður leikur hinna framherjanna o.fl. Mido er samt ennþá mikilvægur leikmaður fyrir liðið en eins og staðan er í dag er hann sóknarmaður númer 4.

Jermain Defoe B+
Defoe hefur byrjað fleiri leiki á þessu tímabili heldur en í fyrra og er það að skila sér, því hann er búinn að skora grimmt. Hann og Berbatov virðast ná ágætlega saman frammi og það hefur bara hjálpað liðinu að hafa sama framherjaparið marga leiki í röð. En þegar Keane kemur aftur inn í myndina má búast við að róteringin byrji aftur.

Andy Barcham D
Þessi ungi varaliðsmaður spilaði einn leik í Deildabikarnum og stóð sig ágætlega. Hann mun þó eiga erfitt uppdráttar miðað við sóknarmennina sem eru nú þegar hjá félaginu.