Tap í deildarbikarnum

0
596

Tottenham sótti ekki sigur til Arsenal í seinni undanúrslitaleiknum í Deildarbiknum. Jol setti Robinson aftur í markið frá fyrri leiknum og í vörninni voru Ekotto, Gardner, Dawson og Chimbonda. Á miðjunni léku Steed, Zokora, Jenas og Ghaly. Lennon átti reyndar að byrja en veiktist. Frammi voru svo Keane og Defoe.

Leikmenn Tottenham sýndu að þeir geta sýnt stöðugleika í leik sýnum því það brást ekki útileikjaformið. Ekki virtist skipta neinu máli að verið var að berjast um leik í úrslitum í keppninni því lið okkar átti aðeins tvö skot á markið (ramman). Það fyrra lét Robbí Keane verja og seinn gaf okkur jöfnunarmark í lok leiks eftir að Arsenal komst yfir. þetta mark okkar sem Mido skoraði með skalla eftir aukaspyrnu frá Jenas tryggði okkur framlenginu.
Ef þið haldið að leikmenn Tottenham hafi komið dýrvitlausir og staðráðnir í að skora til að trygga að við færum áfram þó hafið þið rangt fyrir ykkur. Það var í raun augljóst í framlengingunni að þeir trúðu því ekki að þeir gætu skorað og því fór sem fór. Arsenal bætti við marki eftir mistök frá Rocha sem hafði komið inná. Áður en yfir lauk höfðu þeir skorað þriðja markið sem reyndar fór af Chimbonda innfyrir. Dawson var besti leikmaður Tottenham í leiknum. Án þess að lasta hann því hann var góður þá þurfti samt ekki mikið til.
Liðið: Robinson, Chimbonda, Assou-Ekotto, Dawson, Gardner (Rocha, 72), Ghaly (Huddlestone, 79), Zokora, Jenas, Malbranque (Mido, 79), Defoe, Keane. Varamenn: Cerny, Lennon.