Tottenham-Man. Utd. 0-4

0
609

Tottenham fékk sinn stærsta skell á tímabilinu á sunnudag þegar Man. Utd. kom í heimsókn. Niðurstaðan fjögra marka tap. Eins og svo oft áður spiluðu okkar menn fínan bolta í fyrri hálfleik úti á vellinum en voru lánlausir þegar kom að markinu.

Vendipunkturinn var svo þegar Ronaldo lét sig falla í teygnum og fékk vítaspyrnu rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Hann skoraði sjálfur úr vítaspyrnunni. Strax í byrjun seinni hálfleiks gerðu þeir annað mark og þá gáfust okkar menn að mestu upp. Eftirleikurinn var auðveldur og bættu þeir við tveim mörkum áður en yfir lauk. Þar með höfum við tapað þremur heimaleikjum í deildinni í röð. Er mál að linni.
Liðið: Robinson, Chimbonda, YP Lee, Dawson, Gardner, Lennon, Huddlestone, Zokora (Ghaly 54), Malbranque, Defoe (Keane 54), Berbatov. Subs: Cerny, Murphy, Rocha.