Við höfum séð það verra.

0
615

Óheppni og ógæfu okkar manna ætlar ekki að linna. í gær töpuðum við fyrir Sheff. Utd. 2-1 eftir að hafa komist yfir á annari mínútu með marki frá Jenas eftir frábæra sendingu frá Keane. Lennon og Huddlestone voru veikir og spiluðu ekki með. Jenas og Tainio kom inn í þeirra stað, Rocha fór í vornina fyrir Gardner sem var meiddur. Þá kom Keane inn í byrjunarliðið fyrir Defoe. Við vorum betri í ca. 15 mínútur en eftir það vorum við á hælunum. Dómar féllu alls ekki með okkur í þessum leik. En það er ekkert nýtt og enginn afsökun. En eins og ég sagði í upphafi þá höfum við lent í svona áður. Það sem er öðruvísi er að við virkilega héldum að við værum komnir yfir svona lagað eftir árangur síðasta tímabils. En við erum bara ekki komnir lengra og því er þetta svona. En menn meiga ekki missa sig í svartnætti þó illa gangi í nokkra leiki. Tottenham hefur verið til 125 ár og liðið hefur alltaf komist upp úr lægðum aftur. Ég er þess fullviss að við gerum það núna eins og endranær. Við verðum að styðja við bakið á strákunum og Jol því þeim líður mjög illa yfir þessu líka. COYS.
Liðið:  Robinson, Chimbonda, Assou-Ekotto, Dawson, Rocha, Jenas, Tainio, Zokora, Malbranque, Keane, Berbatov. Varamenn: Cerny, Stalteri, O’Hara, Defoe, Mido.