Fulham – Spurs 0-4

0
662

Nei,  þetta er ekki stafsetningarvilla !!!!   við gjörsigruðum Fulham í gær á útivelli með 4 mörkum gegn engu í 16. liða úrslitum FA CUP.
4-0 var líklega í það mesta og gefur nú ekki alveg rétta mynd af leiknum.  Til að mynda átti Fulham 9 skot sem hittu á rammann á meðan við áttum bara 6.

Robbie Keane skoraði 2 fyrstu mörk okkar og voru þau svo til keimlík.  Langur bolti fram,  Mido skallar boltann áfram á Keane sem tekur boltann viðstöðulaust skoppandi ( half volley ) og hamrar honum í netið … mjög svo glæsilegt mörk.  Berbatov kom svo inná sem varamaður og setti 2 mörk í lokin.  Það seinna alger snilld.
Hér er svo skemmtilegur linkur á annað mark Spurs,  seinna markið hjá Keane. 
http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/fa_cup/virtual_replay/6372337.stm?goalid=500724


Liðið spilaði mjög vel í heild sinni og var virkilega gaman að sjá til liðsins.. leikgleði og barátta var til staðar,  eitthvað sem hefur vantað í töluverðan tíma.
Dregið verður svo í 8 liða úrslit FA CUP um 13.30 í dag ..  mögulegir mótherjar þar eru :
Chelsea
Blackburn / Arsenal
Reading / Man Utd
WBA / Middlesbro
Man City
Watford
Plymouth

Væri nú þægilegt að fá heimaleik gegn Man City, Watford, Plymouth eða WBA/Middlesbro … sleepa við "stóru" liðin …  en sjáum til hvað verður.
                                                                                                                                          Birgir