Tottenham hélt hreinu í 1-0 sigri

0
707

Þar kom að því. Við héldum hreinu. Ekki að það sé eitthvað markmið í sjálfum sér því meðan við skorum fleiri mörk en andstæðingurinn skiptir það engu að halda hreinu. En að leiknum gegn Reading. 

Jol stillti þeim Berbatov og Keane upp í framlínunni og á miðjuna setti hann Steed, Zokora, Jenas og Lennon. Vörnin var skipuð Lee, Rocha, Dawson og Cimbonda. Í markinu var svo Robinson að sjálfsögðu. Það er skemmst frá því að segja að við vorum miklu betra allan leikinn þó Reading menn hafi náð að skjóta í stöng í fyrri hálfleik og setja á okkur smá pressu þegar leið á leikinn. Leikmenn okkar voru sem oft áður klaufar þegar kom að vítateig þeirra en víti sem Tottenham fékk á 40. mínútu gerði út um leikinn. Allir leikmenn okkar voru að standa sig vel nema þá þessi klaufaskapur en það á eftir að bæta þar. Keane tók vítið og skoraði það sem reyndist sigurmarkið.
Liðið: Robinson, Lee, Rocha, Dawson, Cimbonda, Steed (Hudd 80), Zokora, Jenas, Lennon, Keane (Defoe 65), Berbatov. Varamenn: Cerny, Stalteri, Taarabt.