Fyrsta tapið í UEFA bikarnum á tímabilinu

0
711

Þrátt fyrir að Keane hafi skorað mark á annari mínútu leiksins gegn Sevilla á Spáni töpuðu okkar menn leiknum 2-1. Má það þakka meðal annars dómaranum sem gaf Sevilla víti sem okkar fyrrum framherji Kanute skoraði úr. Með því marki jöfnuðu Sevilla leikinn og þeir náðu svo að komast yfir eftir góða sókn. Fram að jöfnunarmarkinu vorum við betra liðið en okkar menn misstu svolítið flugið við þetta "ekki víti". En leikmenn okkar börðust vel og geta verið nokkuð sáttir við að fara með útimark og eins marks mun í heimaleikinn gegn liði sem er í öðru sæti í Úrvalsdeild þeirra Spánverja á eftir Barcelona. Jol setti Tainio í liðið í stað Steed og þá kom Stalteri í byrjunarliðið þar sem Rocha var ekki löglegur í þessum leik. Chimbonda spilaði sem miðvörður. Það er engin vafi að við erum ansi varnarlaus vegna þessara miklu breytinga sem þarf að vera að gera á vörninni og þó má segja að það sé afrek að ná þeim árangri sem þó er að nást. Allt liðið var að spila vel en þó sást að andstæðingarnir voru engir akvisar og það er ekki gefið að við snúm dæminu við í næstu viku en það er þó góðar líkur á því. Leiðindar slagsmál og læti sáust til stuðningsmanna Spurs á leiknum og er það mál í rannsókn. Fyrstu fréttir af ástæðum átakanna eru að lögreglan hafi ýtt undir það með óskynsamlegri hegðun sem æsti upp lítinn hóp stuðningsmanna Spurs með þessum afleiðingum.
Liðið:
Robinson, Stalteri, Chimbonda, Dawson, YP Lee, Lennon (Malbranque 79), Zokora, Jenas, Tainio (Ghaly 83), Berbatov, Keane. Subs: Cerny, Defoe, Taarabt, Mido, Ifil.