Chelsea-Tottenham 1-0

0
677

Jol gerði fimm breytingar á liðinu frá leiknum við Sevilla. Lee, Keane, Berbatov, Lennon og Zokora voru hvíldir og inn komu Rocha, Ghaly, Mido, Defoe og Steed. Leikurinn var ágæt skemmtun og við gáfum

Chelsea lítið eftir. Mido komst næst því að skora í fyrri hálfleik. Seinni hálfleikur var ekki gamall þegar Carvalio fékk tíma til að skjóta á markið tölvert fyrir utan teig. Robinson (ekki í fyrsta skipti) náði ekki til boltans sem fór í fjærhornið niðri. Við áttum eitt gott færi undir lokin þegar Berbatov skallaði svipað og Mido en Cech var líka með hann á hreynu eins og Mido og varði. Taarabt kom inná í seinni hálfleik þegar 25 mínútur voru eftir og setti strax mark sitt á leikinn. Hann var óhræddur við stórstjörnur Chelsea og var nálagt því að skora. Vonandi heldur hann svona áfram. Bæði Mido og Defoe ollu vonbrigðum og eins fannst mér Ghaly slappur. Aðrir stóðu nokkurnveginn fyrir sýnu enda gáfum við Chesea lítið eftir eins og ég sagði.
Liðið: Robinson, Chimbonda, Rocha, Dawson, Stalteri, Ghaly, Tainio (Taarabt, 64), Jenas (Zokora, 82), Malbranque, Mido (Berbatov, 69), Defoe. Varamenn: Cerny, Ifil.