Tottenham – Sevilla 2-2

0
629

Jæja, þannig fór um sjóferð þá.

Jafntefli við Sevilla á White Hart Lane í gær batt enda á góða frammistöðu í UEFA CUP þetta tímabilið.
Lokatölur 2-2 þar sem Defoe og Lennon skoruðu fyrir okkur.

Leikurinn í gær fór alveg hrikalega af stað fyrir okkar menn, Malbranque skoraði sjálfsmark strax á 3. mínútu .. hann náði að troða tuðrunni í markið á einhvern óskiljanlegan hátt !! Ekki nema um 5 mínútum seinna skoraði Kanoute annað mark Sevilla og kom þeim í 0-2. Þetta mark þýddi að Tottenham þurfti að skora alla vega 4 mörk til að eiga von um að komast áfram.

Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks voru Tottenham ekki upp á marga fiska.. eitt færi leit dagsins ljós þegar Berbatov átti hnitmiðað skota sem small í stönginni , og það var undir lok fyrri hálfleiks.

Seinni hálfleikur byrjaði svo með látum .. Áhorfendur á White Hart Lane voru sko ekki að gefast upp og studdu ótrauðir við bakið á sínum mönnum. Það var ekki lognmolla á pöllunum fyrstu 15-20 mínúturnar í seinni hálfleik, maður hefur sjaldan upplifað annað eins á WHL.

Tottenham stjórnaði alveg leiknum í seinni hálfleik en Sevilla beitti hættulegum skyndisóknum af og til.

Það var svo um miðbik seinni hálfleiks að M.Jol gerði breytingu og tók útaf Zokora og setti Defoe inná og breytti úr 4-4-2 í 4-3-3. Fannst samt að Jol hefði alveg mátt taka Jenas eða Malbranque útaf.. en Jol er víst stjórinn.

Ekki nema 15 sekúndum eftir að Defoe kom inná var hann búinn að skora, með sinni fyrstu snertingu. Skóflaði boltanum yfir línuna eftir misheppnað skot hjá Keane. Allt ætlaði svo um koll að keyra 2 mínútum síðar þegar Lennon jafnaði leikinn. Eftir klafs í teignum datt boltinn fyrir Lennonn sem potaði boltanum framhjá markverðinum og í netið.

Á þessari stundu, 2 mörk á tveimur mínútum fór fólk að trúa að það væri kannski von …

Tottenham hélt áfram að stjórna leiknum án þess að skapa sér mikið. Dawson komst í ákjósanlegt færi á ca. 80. mínútu en hitti boltann illa sem skoppaði yfir og svo 5 mínútum seinna fékk Berbatov eðalfæri en við það sama hitti boltann illa sem endaði svo til beint á markvörðinn. Lengra komst Tottenham ekki en uppskáru rautt spjald á lokamínútum leiksins þegar Tainio var rekinn útaf fyrir ljótt brot, lokatölur 2-2 ( 3-4 ) samanlagt.

Evrópudraumurinn er úti, en nú er bara mál að girða sig í brók og komast í UEFA CUP á næsta tímabili.

Það sem mér fannst áberandi í þessum leik var leikaraskapur Sevilla leikmanna, liggjandi um allan völl eins og hráviður þegar ekkert var að. Dómarinn gleypti við þessu framan af leik, en fór svo að taka á þessu.

Besta dæmið var líklega þegar einn leikmanna Sevilla var að reyna að gefa fyrir frá endamörkum en boltinn fór beint til Robinson sem kom boltanum í leik. En leikmaðurinn frá Sevilla endaði uppvið auglýsingaskiltin eftir að hafa gefið fyrir og "meiddi" sig eitthvað og haltraði all svakalega .. en með naumindum náði hann að haltra þessa 5 metra frá skiltinu að vellinum og svo um leið og á völlinn komst hann, þá lagðist hann niður og emjaði eins og stunginn grís !!! Robinson var nú ekkert að fara að láta bjóða sér þetta, hljóp til hans og ýtti honum honum útaf vellinum svo ekki þyrfti nú að stöðva leikinn. Sevilla gæinn var nú ekki kátur með þetta, stóð upp og átti einhver orðaskipti við Robinson og gekk svo áleiðis inn á völl .. EKKERT AÐ HONUM. Daniel Alvez var nú manna verstur í gær og var púað á hann löngum stundum fyrir leikaraskap og væl. Leiðinlegur blettur á annars gott lið sem þetta Sevilla lið er.

Lið Tottenham : Robinson , Tainio , King , Dawson , Chimbonda , Lennon , Jenas , Zokora ( Defoe 65 mín ) , Malbranque , Keane , Berbatov.

Ónotaðir varamenn : Cerny , Murphy , Ghaly , Taarabt , Barnard , Ifill

                                                                                                                                    Birgir