Þegar Tottenham stuðningmenn héldu að leikurinn væri tapaður enda komið 94. mínúta á klukkuna skaut Jenas jarðarbolta í blá hornið hjá Lehmann og tryggði jafntefli. Jol lét Rocha spila í vinstri bakverðinum og tefldi fram King aftur í vörninni. Dawson og Cimbonda voru á sínum stað. Miðjan var þannig að Tainio var á hægri kanti og Lennon á þeim vinstri. Jenas og Zokora voru svo á miðjunni. Frammi voru sem fyrr Keane (sem reyndist ekki eins meiddur og óttast var) og Berbatov. Það var Keane sem kom okkur yfir eftir hálftímaleik. Við vorum að spila nokkuð vel í fyrri hálfleik en vorum þó heppnir að vera yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik er eiginlega hægt að segja að okkar menn hafi bara ekki mætt. Arsenal tók öll völd á vellinum og gerðio tvö mörk sem við hefðum átt að koma í veg fyrir. Hvernig það atvikaðist að þeir ekki gerðu fleiri mörk og létu okkur svo jafna í uppbótatíma er óútskýranlegt. Berbatov var eiginlega sá eini og kannski Keane í fyrri hálfleik sem virkilega reyndu. Ég vona að leikmenn komi með meiri sigurvilja í síðustu leikina en þeir gerðu á laugardaginn.






