Wigan-Tottenham 3-3

0
641

Ég er nú ekki talsmaður mikilla afsakana en reyni þó að vera sanngjarn. Á sunnudag mættum við Wigan á útivelli og þrátt fyrir að vera að leika ágætlega lengst af verður að segja að við náðum jafntefli 3-3. Ég vill meina að það hafi alls ekki verið nógu gott. Ég veit að liðið er búið að spila þétt að undanförnu og enn ein útgáfan af vörn leit dagsins ljós. Okkar menn áttu samt að gera betur. 

Ifil lék sinn fyrsta leik í byrjunarliði síðan í byrjun tímabilsins 2004-2005. Hann kom í stað Steed en spilaði í vinstri bakverðinum og Tainio færði sig fram á vinstri kannt. Rocha tók stöðu King þar sem Jol vildi ekki spila honum aftur svona stuttu eftir leikinn á fimmtudag. Aðrar breytingar voru ekki gerðar á byrjunarliðinu.
Við urðum fyrir áfalli strax á annari mínútu þegar Wigan skoraði eftir að við náðum ekki að hreinsa frá marki. Það tók okkur reyndar ekki nema aðrar tvær að jafna og var þar að verki Berbatov eftir undirbúning frá Keane. Við lentum svo aftur undir á 30. mínútu. Aftur jöfnum við stuttu síðar þegar Keane skorar úr víti sem Jenas vann. Eftir klukkutíma leik fáum við en á okkur mark og svörum jafn harðan með marki sem Keane skoraði eftir útspark frá Robinson.Bæði lið hefðu getað bætt við mörkum en jafntefli varð niðurstaðan.