Tottenham hefur fest kaup á franska leikmanninum Younes Kaboul frá Auxerre í Frakklandi (lengst til vinstri, hinir eru Bent og Bale) . Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið vera í kringum 8m punda.
Kaboul er 21 árs miðvörður sem leikið hefur 52 leiki fyrir Auxerre og skorað 2 mörk. Hann er einnig fyrirliði franska U-21 árs landsliðsins og vann Evrópumótið með U-19 ára liðinu.´Damien Commolli og Martin Jol voru mjög ánægðir með komu hans enda einn efnilegasti leikmaður Frakka. Auk þeess að búa yfir miklum styrk og hraða, hafa góða boltakunnáttu og vera sterkur skallamaður hrifust Jol og Commolli líka af persónuleika hans en hann hefur mikla leiðtogahæfileika og sýndi fram á mikla löngun til að spila fyrir Spurs þrátt fyrir áhuga frá öðrum liðum.
Við Bjóðum Kaboul velkominn til Spurs!!!!






