Val á leikmanni síðasta tímabils LOKADAGUR!!!

0
642

Nú er búið að opna fyrir kosningu um leikmann tímabilsins 2006-07. Atkvæðisrétt hafa þeir sem borgað hafa félagsgjaldið 2006-07. Kosningin fer þannig fram að þið þurfið að senda tölvupóst á netfangið stjorn@spurs.is með einu nafni leikmanns Tottenham Hotspur sem spilaði á síðasta tímabili. Allir leikmenn sem spiluðu eitthvað eru í kjöri en aðeins má greiða einu sinni atkvæði og gildir netfangið og undirskrift þ.e. nafn og kennitala. Ef þetta er ekki þá er atkvæðið ógilt. Kosningu líkur kl. 24 þann 22. júlí nk. (þeir sem geta ekki sent tölvupóst mega senda venjulegt bréf á Harald Jónasson Starhólma 4, 200 Kópavogi og gildir þá póststimpillinn). 
Stjórnin