Tottenham vann annan leik sinn á Vodacom mótinu í S-Afríku gegn liði Orlando Pirates. Bent kom Tottenham yfir í fyrri hálfleik og Routledge bætti öðru við í seinni hálfleik. Undir lok leiksins náðu leikmenn Orlando Pirates að minnka muninn úr vítaspyrnu.
Martin Jol stillti upp nánast gjörbreyttu liði frá síðasta leik. Cerny spilaði í marki í stað Robbo, Chimbonda og Stalteri léku sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu og nýju mennirnir Bent, Kaboul og Taarabt spiluðu allir þrír. Defoe lék sinn fyrsta leik í framlínunni með Bent og Huddlestone lék einnig sinn fyrsta leik.Leikurinn byrjaði vel og strax á 12.mínútu sendi Huddlestone langan bolta fram og þar var Bent tilbúinn, tók við boltanum og afgreiddi hann framhjá markmanni Orlando Pirates, hans annað mark á undirbúningstímabilinu. Leikmenn Orlando ætluðu sér þó ekki að tapa leiknum og sóttu á mark Spurs og mátti Cerny leggja sig allan fram í markinu og varði nokkrum sinnum alveg stórkostlega. Ekki vantaði heldur færin hjá okkar mönnum, Kaboul átti hættulegt skot úr aukaspyrnu, Defoe komst nálægt því að skalla boltann beint fyrir framan markið en rétt missti af boltanum og Taarabt og Huddlestone áttu skot af löngum færum. En ekki gekk að koma boltanum inn og staðan í hálfleik því 1-0 okkar mönnum í vil. Síðari hálfleikur var mun rólegri en sá fyrri. Taarabt átti besta tækifærið fram að 70 mín en þá var honum skipt út af og inná kom Jamie O´Hara. Einnig fór Jenas af velli og inná kom Malbranque. Tíu mínútum síðar áttu leikmenn Orlando Pirates gott tækifæri til að skora en Cerny stóð fyrir sínu og varði glæsilega. Á 83.mínútu jók Tottenham svo forskot sitt þegar Malbranque hljóp upp hægri kantinn, gaf boltann fyrir markið og þar tók Routledge glæsilega við boltanum og skaut honum svo í markið. Staðan orðin 2-0. En eitthvað kæruleysi vaknaði við þetta hjá leikmönnum Spurs því einungis 2 mínútum síðar var dæmd vítaspyrna á Tottenham þegar Chimbonda braut á leikmanni Orlando Pirates innan vítateigs. Leikmaður að nafni Matema steig á vítapunktinn og tók vítið en Cerny varði vítið. Línuvörðurinn dæmdi þó að vítið skyldi endurtekið þar sem að Cerny var farinn af marklínunni áður en Matema sparkaði í boltann. Matema virtist ekki treysta sér aftur í vítið því samherji hans, Kamwendo steig á vítapunktinn. Aftur varði Cerny en línuvörðurinn dæmdi aftur að vítið skyldi endurtekið af sömu ástæðu. Kamwendo tók vítið í þriðja skiptið og skoraði úr því en það munaði þó sáralitlu að Cerny næði að verja það. Nær komust leikmenn Orlandon þó ekki og lokastaðan 2-1 Tottenham í hag. Tottenham hefur því unnið báða leikina og leika svo úrslitaleikinn á laugardaginn kemur við sigurliðið úr innbyrgðis viðureign Kaizer Chiefs og Orlando Pirates.
Lið Spurs: Cerny, Chimbonda, Stalteri, Kaboul, Gardner, Routledge, Jenas (Malbranque 69), Huddlestone, Taarabt (O´Hara 69), Defoe, Bent.
Varamenn: Robinson, Dawson, Rocha, Daniels, Maghoma, Zokora, Keane.






