Tottenham – Kaizer Chiefs 2-1

0
688

Tottenham lék í dag sinn fyrsta leik í Vodacom mótinu í S-Afríku gegn Kaizer Chiefs og lauk leiknum með 2-1 sigri okkar manna. Mörk Tottenham skoruðu þeir Robbie Keane og Dimitar Berbatov en mark Kaizer Chiefs skoraði fyrrum leikmaður Charlton, Shaun Bartlett.

Martin Jol stillti upp þónokkuð sterkara liði í þessum leik heldur en hann hefur gert í hinum tveimur æfingaleikjunum. Leikurinn byrjaði þó ekki vel fyrir Kaboul því strax í upphafi fékk hann spark í andlitið með þeim afleiðingum að framtönnin hans brotnaði og þurfti hann að yfirgefa völlin í öryggisskyni og inná kom Gardner. Leikurinn byrjaði rólega en fyrsta skot leiksins kom frá leikmanni Kaizer Chiefs. Heimamenn voru svo nokkuð sterkari framan af fyrri hálfleik. Robbie Keane fékk gult spjald í fyrri hálfleik fyrir að mótmæla rangstöðudómi en í 5-6 skipti í leiknum var okkar leikmaður kominn einn innfyrir en rangstaða dæmd þrátt fyrir að sjónvarpsupptökur sýndu greinilega að svo var ekki. Berbatov átti hættulegt færi þegar leið að hálfleik og skallaði fyrirgjöf frá Keane rétt framhjá markinu. En það var svo á 40.mín að Keane vippaði yfir markmann Kaizer og kom Tottenham yfir en þetta var hans þriðja mark í jafnmörgum leikjum á undirbúningstímabilinu. Í hálfleik var staðan 1-0.

Það tók Kaizer Chiefs þó ekki langan tíma að jafna leikinn. Á 50.mín kom fyrirgjöf frá vinstri kantinum og náði Shaun Bartlett, fyrrum leikmaður Charlton, að skalla boltann framhjá Gardner og Robinson. Staðan því orðin 1-1. Robinson var ekki algjörlega verkefnalaus í markinu því leikmenn Kaizer áttu nokkur hörkuskot að marki í leiknum en Robinson varði þau öll. Á 60.mín kom Bent inná í stað Routledge. Þessi skipting átti eftir að reynast góð því stuttu seinna átti Bent góðan sprett upp vinstri kantinn að markinu og renndi boltanum í fæturnar á Berbatov sem var vel staðsettur fyrir framan markið og skoraði auðveldlega. Okkar menn komnir aftur yfir 2-1. Ifil þurfti svo að fara útaf á 78.mín eftir að hafa meiðst lítillega. Taarabt kom svo inná á 83. mín og átti nokkra góða spretti. Kaizer gerðu nokkrar tilraunir til að jafna en það gekk þó ekki og sigurinn okkar.

 

Liðið: Robinson, Ifil (Daniels 78), Rocha, Kaboul (Gardner 1), Dawson, Routledge (Bent 57), Zokora, Jenas, Malbranque, Berbatov (Taarabt 83), Keane.

Varamenn: Cerny, Maghoma, O´Hara.