Áfall fyrir Pamarot

0
828

Meiðslin sem Noe Pamarot hlaut í leiknum gegn Birmingham á laugardag eru alvarlegri en fyrst var haldið. Í dag kom í ljós að hann hafi slitið liðbönd í hné og verður þ.a.l. frá keppni í 6-9 mánuði. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir Pamarot en þetta er fyrsta tímabil hans í ensku deildinni eftir að hafa verið keyptur frá Nice í sumar fyrir 1,75 milljónir punda. Þetta hefur þó ekki slæm áhrif á lið Spurs því að Stephen Kelly hefur verið að spila í stöðu hægri bakvarðar með mikilli prýði og í byrjun tímabils lék unglingaliðsmaðurinn Phil Ifill einnig tvo leiki í þessari stöðu. Við vonum bara að Pamarot nái sér sem fyrst og að hann nái fullum bata. OÓJ

DEILA
Fyrri fréttEmil kom inn á
Næsta fréttKeane refsað