Keane refsað

0
901

Fréttir hafa borist af því að Robbie Keane hafi verið sektaður um 10.000 pund. Einnig var hann látinn æfa með varaliðinu. Ástæðan fyrir þessari refsingu er að Robbie reiddist mjög að Mido var skipt inn á sem þriðja manni en ekki honum og rauk hann inn í búningsklefa með miklum látum. Þetta hefur vakið upp vangaveltur um framtíð hans hjá félaginu. Um það er auðvitað ekkert hægt að segja nema það að leikmönnum er refsað alltaf annað slagið í enska boltanum án þess að það hafi í för með sér að þeir fari frá þeim félögum sem refsingunni beitti. Nýjasta dæmið er auðvitað Bowyer og Dyer sem báðir verða áfram hjá Newcastle eftir því sem best er vitað. Ég reikna því með að Robbie taki þessri refsingu og haldi sínu striki fyrir liðið í komandi leikjum. Þetta undirstrikar hinsvegar það að Jol mun ekki sætta sig við svona framkomu og skiptir þá engu hver á í hlut. Það er hann sem velur liðið og innáskiptingar ekki Robbie Keane eða einhver annar. Ég fagna því mjög að hann skuli gera mönnum það ljóst með svo afgerandi hætti.. HJ

DEILA
Fyrri fréttÁfall fyrir Pamarot
Næsta fréttFyrsta mark Emils