Tottenham tapaði fyrir liði Arsenal í slag Norður Lundúna liðanna með þremur mörkum gegn einu. Mark Tottenham skoraði Gareth Bale, hans annað mark fyrir Tottenham en mörk Arsenal skoruðu þeir Adebayor (2) og Fabregas.
Martin Jol gerði eina breytingu á byrjunarliðinu í síðasta leik og kom Dawson inn í vörnina í stað Rocha. Robinson var í marki, Chimbonda, Dawson, Kaboul og Lee skipuðu varnarlínuna, Malbranque, Jenas, Huddlestone og Bale voru á miðjunni og Keane og Berbatov sóknarmenn dagsins.
Andrúmsloftið var magnað á White Hart Lane eins og ávallt þegar þessi lið mætast enda mikill rígur á milli stuðningsmannanna að minnsta kosti. Fyrsta hættulega færi leiksins áttu leikmenn Arsenal og kom það strax á þriðju mínútu. Adebayor átti þá skot af löngu færi í átt að marki en Robinson kastaði sér til hliðar og varði boltann í horn sem var svo hreinsað frá. Arsenal byrjaði örlítið betur en Tottenham komst nú fljótlega inn í leikinn. Huddlestone, Malbranque, Keane og Berbatov áttu allir möguleika á að komast í sæmileg tækifæri en ekkert varð úr því. Á 13.mínútu dró þó til tíðinda. Bale átti góða sendingu á Berbatov sem var svo klaufalega felldur rétt fyrir utan teig Arsenal manna. Bale tók aukaspyrnuna og skaut að markinu glæsiskoti sem fór vinstra megin framhjá varnarveggnum og beint í netið. Staðan orðin 1-0 og Bale kominn með tvö mörk fyrir Tottenham á tímabilinu. Arsenal menn reyndu að svara fyrir sig strax í næstu sókn en Robinson sá til þess að svo færi ekki. Arsenal átti svo gott færi þegar fyrri hálfleikur var u.þ.b. hálfnaður en þá átti Diaby hörkuskot að marki sem endaði í þverslánni. Keane og Berbatov áttu svo færi á að auka forskotið en allt kom fyrir ekki og staðan 1-0 í hálfleik í frekar jöfnum leik.
Seinni hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri hafði endað. Á 50.mín fékk Berbatov svo sannkallað dauðafæri. Malbranque gaf sendingu á Berbatov sem lék snyrtilega á Almunia í markinu en Toure var sá eini sem stóð í vegi Berbatovs og marksins. Berbatov ákvað þá að reyna að leika á Toure í stað þess að skjóta en það fór ekki betur en svo að Toure náði að komast í boltann. Strax í næstu sókn átti Adebayor skot að marki en hann skaut rétt yfir. Stuttu síðar vildu Arsenal menn fá vítaspyrnu er Robinson fór út í boltann og Adebayor féll við. Dómarinn flautaði réttilega ekki víti þar sem Robinson fór fyrst og fremst í boltann. Á 61. mín fékk Huddlestone sendingu frá Chimbonda og skaut að marki en skot hans fór rétt framhjá. En þremur mínútum síðar fór allt á versta veg. Arsenal fékk aukaspyrnu fyrir utan teig sem Fabregas tók og gaf inn í teiginn þar sem Adebayor hoppaði hæstur manna og skallaði boltann í netið. Staðan orðin jöfn 1-1. Stuttu síðar fór markaskorarinn Bale útaf í skiptum fyrir Lennon sem var að spila sinn fyrsta leik eftir að hafa farið í aðgerð í vor. Bale hafði spilað vel en fékk smá högg á lærið fyrr í hálfleiknum og Jol hefur ekki viljað taka neina áhættu með frekari meiðsli. Á 78.mínútu fékk Tottenham hornspyrnu sem Jenas tók og féll boltinn fyrir fætur Berbatov sem skaut að marki en Clichy bjargaði á línu. Berbatov var mjög ósáttur við dómgæsluna þá þar sem hann vildi meina að boltinn hefði farið inn enda stóð Clichy inni í markinu þegar hann varði á línu með bringunni. Sjónvarpsupptökur gátu ekki sýnt þetta nógu vel en ákvörðun línuvarðar stóð og ekkert mark dæmt. En Fabregas sá þá algjörlega um að refsa Tottenham fyrir þetta færi. Arsenal fengu skyndisókn en einhverra hluta vegna fékk Fabregas nægan frið frá varnarmönnum Spurs til að leggja fyrir sig boltann fyrir utan teig og þruma að marki og inn fór boltinn í vinstra hornið. Arsenal komið yfir 2-1. Svar Martin Jol við þessu var að setja Darren Bent strax inná þegar 9.mínútur voru til leiksloka og fór Malbranque útaf fyrir hann. Og Bent fékk dauðafæri fljótlega þegar Jenas gaf boltann á hann og var hann kominn einn á móti Almunia en hitti boltann undarlega og skaut framhjá markinu. Arsenal átti þó ekki í sömu vandræðum með að klára færin sín og Adebayor tryggði Arsenal sigurinn í uppbótartíma með góðu skoti framhjá Robinson í markinu. Leikurinn var frekar jafn en var gott dæmi um það að menn vinna ekki leiki ef þeir klára ekki færin sín og var það helsti munurinn á liðunum í þessum leik.
Lið tottenham: Robinson, Chimbonda, Dawson, Kaboul, Lee, Malbranque (Bent 81), Jenas, Huddlestone, Bale (Lennon 68), Keane, Berbatov. Ónotaðir varamenn: Cerny, Rocha, Zokora.






