Tottenham vann stórsigur á liði Anorthosis Famagusta í fyrri viðureign liðanna í UEFA cup en sigurvegarinn kemst áfram í riðlakeppnina. Þessi leikur var háður á White Hart Lane en sá síðari verður í Kýpur á þeirra heimavelli. Lokaniðurstaða leiksins var 6-1 og voru það þeir Kaboul, Dawson, Keane, Bent og Defoe (2) sem skoruðu mörk Tottenham.
Martin Jol kaus að stilla upp sterku liði enda engin áhætta tekin í svo mikilvægri keppni. Cerny byrjaði í marki þar sem Robinson átti við smávægileg meiðsli að stríða. Varnarlínan var skipuð þeim Chimbonda, Dawson, Kaboul og Ekotto sem spilaði sinn fyrsta leik eftir ansi langan tíma á meiðslalista. Á miðjunni voru þeir Lennon, Huddlestone, Zokora og Malbranque og frammi byrjuðu þeir Bent og Keane.
Fyrsta mark leiksins lét ekki bíða lengi eftir sér. Huddlestone tók hornspyrnu á fjórðu mínútu sem hitti beint á hausinn á Kaboul sem skallaði hann snyrtilega í netið og var þetta hans annað mark fyrir félagið. Á tíundu mínútu vildu leikmenn Tottenham fá vítaspyrnu þar sem Bent virtist hafa verið felldur innan teigs en dómarinn var ekki á sama máli og leikurinn hélt því áfram. Keane og Bent áttu nokkuð hættuleg færi á fyrsta hálftímanum en boltinn vildi þó ekki inn. Það dró þó loks til tíðinda á 39.mínútu. Keane tók hornspyrnu sem Chimbonda skallaði að marki en markvörður Anorthosis náði að verja. Boltinn barst þó aftur út í teig þar sem Dawson fylgdi vel á eftir og skoraði. Staðan því orðin 2-0. En síðustu mínútur fyrri hálfleiks urðu svo ansi spennandi. Þremur mínútum eftir mark Dawson gaf Ekotto sendingu inn í teig sem Keane tók snyrtilega við og þrumaði boltanum í netið með vinstri fótar skoti. Mínútu síðar lét Bent svo til sín taka eftir hrikaleg mistök varnarmanns Anorthosis en hann vippaði boltanum yfir sinn eigin markmann og Bent var fljótur að hlaupa á eftir boltanum og renndi honum í netið. Staðan í hálfleik var því 4-0 fyrir heimamönnum.
Í byrjun seinni hálfleiks áttu Chimbonda og Bent báðir hættuleg færi eftir hornspyrnu en inn fór boltinn þó ekki. Á 63.mínútu kom Defoe svo inná í staðinn fyrir Keane og var þeim báðum vel fagnað. Defoe var ekki lengi að koma sér á blað því tveimur mínútum síðar tók hann þrumuskot fyrir utan teiginn og hamraði boltann í vinstra horn marksins. Staðan því orðin 5-0 fyrir Tottenham. Martin Jol gerði svo tvær breytingar á liðinu en Taarabt kom inná fyrir Malbranque á 70. mínútu og Bale fyrir Ekotto á þeirri 80. Á 81.mínútu gerðu varnarmenn Tottenham sig seka um algjöran klaufaskap í eigin teig þegar leikmaður Anorthosis gaf sendingu inní teiginn og eftir smá basl náði leikmaður þeirra að sparka boltanum að marki og framhjá Cerny sem virtist algjörlega óviðbúinn þessu skoti. Staðan því orðin 5-1 og Anorthosis komnir með mark á útivelli sem getur oft reynst mikilvægt. En leikmenn Tottenham voru ekki hættir. Í uppbótartíma fékk Defoe sendingu frá Huddlestone rétt utan við vítateiginn vinstra megin, spilaði boltanum meira fyrir mitt markið og skaut öðru þrumuskoti fyrir utan teiginn og nú small boltinn í hitt hornið. Annað mark Defoe í þessum leik sem og fyrir Tottenham á leiktíðinni. Lokastaðan í leiknum var því 6-1.
Tottenham fer því í seinni leikinn með 5 marka forystu og í ágætis stöðu þrátt fyrir mark Anorthosis. En ekkert er þó gefið í fótboltanum og þurfa leikmenn því að gefa allt sitt í síðari leiknum og tryggja okkur áframhaldandi evrópubolta á þessari leiktíð.
Lið Tottenham: Cerny, Chimbonda, Dawson, Kaboul, Ekotto (Bale 80), Lennon, Huddlestone, Zokora, Malbranque (Taarabt 70), Keane (Defoe 63), Bent. Ónotaðir varamenn: Robinson, Rocha, Jenas, Berbatov.






