Jafnt á Reebok Stadium

0
746

Ekki var ferðalag Tottenham á Reebok Stadium árangursríkt frekar en fyrri ár en leiknum lauk með jafntefli 1-1. Mark Tottenham skoraði Robbie Keane en Ivan Campo jafnaði fyrir Bolton.

Martin Jol gerði talsverðar breytingar á liðinu frá síðasta leik. Robinson leysti Cerny af hólmi í markinu, Chimbonda og Ekotto voru í bakvarðarstöðunum, Dawson og Rocha spiluðu í miðverðinu en Kaboul meiddist stuttu fyrir leik. Á miðjunni voru þeir Tainio, Jenas, Zokora og Malbranque og framlínuna skipuðu þeir Berbatov og Keane.

            Bolton hóf leikinn betur og áttu þeir Davies og Campo fín færi sem þeir skutu framhjá. Keane og Berbatov áttu líka ágætisfæri en inn fór þó boltinn ekki. En á 34.mínútu dró loks til tíðinda þegar Zokora gaf fyrir á Jenas sem skaut að marki en Jaaskelainen varði skotið út í teiginn, boltinn fór framhjá Berbatov en Keane náði boltanum og skaut framhjá Jaaskelainen. Staðan orðin 1-0 fyrir Tottenham. En ekki lifði sú sæla lengi að vera marki yfir. Aðeins fjórum mínútum síðar gerðist Rocha brotlegur rétt fyrir utan teig og leikmenn Bolton stilltu upp fyrir aukaspyrnu. Diouf tók spyrnuna, gaf fyrir og þar hoppaði Ivan Campo hæstur manna og skallaði framhjá Robinson þrátt fyrir að bæði Rocha og Jenas væru ekki langt frá. Enn eitt markið sem Tottenham fær á sig úr föstu leikatriði og telst það áhyggjuefni hve illa gengur að bæta varnarleikinn. Staðan því orðin 1-1. Leikmenn Tottenham voru þó ekki á því að gefast upp og átti Malbranque gott skot að marki og Tainio átti einnig gott skot sem varnarmaður Bolton skaut næstum í eigið net þegar hann var að verjast skotinu. En staðan í hálfleik var þó jöfn.

            Tottenham kom mun ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og átti Malbranque skot sem fór rétt yfir markið. Tainio átti einnig gott skot og þurfti Jaaskelainen að taka á honum stóra sínum til að verjast marki. Tottenham átti einnig nokkur hálffæri en einu hættulegu sóknir Bolton komu úr föstum leikatriðum. Á 73. mínútu var Berbatov skipt út af og inná kom Darren Bent. Stuttu síðar kom Aaron Lennon einnig inná í skiptum fyrir Tainio. Síðasta hættulega færi leiksins var af hálfu Tottenham en þá fékk Keane sendingu frá Malbranque eftir góða samvinnu Jenas og Malbranque, skaut að marki en Jaaskelainen rétt náði að verja með fingurgómunum. Tottenham var að spila betur í þessum leik og átti t.a.m. 11 skot að marki gegn 3 hjá Bolton. En leikir snúast um að nýta tækifærin og það er eitthvað sem þarf að bæta hjá Tottenham. Leiknum lauk því með jafntefli og fengu hvort lið fyrir sig einungis 1 stig og verma því fallbaráttusætin enn um sinn.

 

Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Dawson, Rocha, Ekotto, Tainio (Lennon 80), Jenas, Zokora, Malbranque, Keane, Berbatov (Bent 73). Ónotaðir varamenn: Cerny, Lee, Huddlestone

DEILA
Fyrri fréttStórsigur í UEFA cup
Næsta fréttCarling Cup