Er martröð Ledley King að ljúka?

0
679

Samkvæmt fréttum í dag og síðustu daga er reiknað með að fyrirliði Spurs, Ledley King, muni geta hafið æfingar eftir hálfan mánuð. King meiddist í júní í leik með landsliðinu og hefur ekki getað leikið síðan.

Martin Jol sagði á vikulegum blaðamannafundi sínum að hann ætti von á því að King myndi geta hafið æfingar með aðalliðinu eftir hálfan mánuð. Jol bætti síðan við að King myndi ekki vera lengi að koma sér í form þar sem hann væri alltaf í "náttúrulega" góðu formi.

Þá verður Paul Robonson ekki með í leiknum gegn Newcastle á mánudaginn en hann meiddist í leik með Englendingum í vikunni. Það þýðir að Radek Cerny mun vera milli stanganna.

Af öðrum meiddum leikmönnum er það að frétta að ungi franski varnarmaðurin Dorian Dervitte hefur hafið æfingar að nýju eftir að hafa náð sér af erfiðum hnémeiðslum sem hann hlaut fyrir ári síðan.

Endurkoma King mun þó ekki vera búin fyrr en hann leiðir liðið út á völlin á nýjan leik. Meiðsli fyrirliðans hafa valdið mörgum áhyggjum og hafa sögusagnir um heilsu hann gengið fram og til baka á spjallborðum.

Eitt er þó öruggt, ef King nær sér að fullu mun varnarleikur liðsins batna gríðarlega mikið. 

DEILA
Fyrri fréttTottenham í G riðli
Næsta fréttEnn eitt tapið!!!