Enn eitt tapið!!!

0
766

Tottenham tapaði enn einum leik sínum í gær þegar þeir mættu Newcastle á útivelli og hafa því einungis unnið einn sigur í fyrstu tíu leikjunum. Leiknum lauk með 3-1 sigri Newcastle en mark Tottenham skoraði Robbie Keane.

Martin Jol gerði nokkrar breytingar á liðinu, sumar nauðsynlegar vegna meiðsla. Robinson meiddist í leik með enska landsliðinu í liðinni viku og var því fjarri góðu gamni og tók Cerny stöðu hans í markinu. Vörnin var sú sama, þ.e. Chimbonda, Dawson, Kaboul og Lee. Malbranque kom inn í liðið í stað Tainio sem var nýkominn úr meiðslum. Jenas og Zokora spiluðu á miðri miðjunni og Bale á vinstri kantinum. Frammi kom Bent inn í liðið í stað Berbatov sem vermdi varamannabekkinn og Keane var þar sem fyrr.

Gareth Bale byrjaði leikinn af krafti fyrir okkar menn og spilaði vel á vinstri kantinum. Fyrsta færi leiksins kom eftir sendingu frá honum inn í teig á Keane sem reyndi að koma boltanum á Bent en það mistókst klaufalega. Á 13.mín var svo komið að Newcastle mönnum og átti Faye hættulegan skalla að marki eftir hornspyrnu sem endaði í þverslánni. Þá var komið að Tottenham á ný eftir að brotið var á Bale en hann lá eftir meiddur í grasinu. Tottenham ákvað þó að taka aukaspyrnuna á meðan hann sat í grasinu Newcastlemönnum að óvöru og fékk Keane boltann inn í teig, reyndi að vippa yfir Given en svo var boltanum sparkað frá. Stuttu síðar þurfti Bale að yfirgefa völlinn vegna meiðsla en ekki hefur verið gefið út hversu alvarleg meiðslin eru en það mun koma í ljós í dag eftir frekari rannsóknir. Owen átti stuttu síðar ansi hættulegt færi sem að Cerny varði meistaralega og Geremi átti einnig hættulegt færi. Á hinum endanum fékk Keane góða sendingu en skotið kom aðeins of seint og fór beint í hendur Given. Nokkrum mínútum fyrir hálfleik átti Martins skot að marki sem Cerny varði en nokkrum andartökum síðar mættust þeir aftur í markteignum og þá gat Cerny lítið gert. Martins fékk boltann eftir langa sendingu fram völlinn og Dawson gerðist sekur um að dekka hann ekki nógu vel , boltinn fór því yfir Dawson og beint á Martins sem hamraði boltann í netið framhjá Cerny. Staðan í hálfleik var því 1-0 fyrir Newcastle.

           

Seinni hálfleikur hófst á svipuðum nótum og sá fyrri endaði. Á 51. mínútu fengu Newcastlemenn hornspyrnu sem Emre tók og Cacapa skallaði boltann óvaldaður á nærstönginni í netið, óverjandi fyrir Cerny. Enn eitt markið sem kemur úr föstu leikatriði og því talsvert áhyggjuefni að ekki náist að bæta úr þessu vandamáli sem hefur verið til staðar í hátt í tvö ár. En staðan orðin 2-0 fyrir Newcastle og lítið sem benti til að Tottenham myndi skora. En við þetta mark hysjuðu leikmenn Tottenham upp um sig buxurnar og hófu að spila betri knattspyrnu sem leiddi til þess að fimm mínútum síðar gaf Chimbonda fyrirgjöf inn í teig sem Bent skallaði beint í stöngina en Keane náði frákastinu og kom boltanum í netið. Nú var enn von fyrir Tottenham og ákvað Martin Jol að bæta í sóknina og setti Berbatov inná í stað Malbranque. Fljótlega færðist meiri harka í leikinn og skapið í mönnum á köflum komið á suðupunkt. Á 70.mín kom skipting hjá Newcastle og kom Joey Barton inná völlinn. Stuttu síðar höfðu Newcastle menn aukið forystuna með marki frá Milner. Boltinn barst inn í teiginn en leikmenn Tottenham hreinsuðu en boltinn barst til Milner sem var einn og óvaldaður rétt fyrir utan teiginn og þakkaði pent fyrir sig með því að skjóta boltanum framhjá Cerny í markinu. Martin Jol setti svo Lennon inná í stað Bent en ekki var mikið um merkileg færi það sem eftir lifði leiks og Newcastle hirti því öll stigin. Tottenham situr því enn í 18. og þriðja neðsta sætinu sem er einnig fallsæti.

Lið Tottenham: Cerny, Chimbonda, Dawson, Kaboul, Lee, Malbranque (Berbatov), Jenas, Zokora, Bale (Tainio), Keane, Bent(Lennon).