Gus Poyet, sem lék með Tottenham á árunum 2001-2004 hefur verið ráðinn sem einn af aðstoðarþjálfurum Juande Ramos. Poyet hefur verið aðstoðarþjálfari Leeds um nokkurt skeið með góðum árangri.
Ráðning Poyet kemur svo sem ekkert á óvart en flestum var ljóst strax í upphafi að hann myndi yfirgefa Leeds þegar honum var ráðlagt að vera ekki á hliðarlínunni í leik þeirra um helgina.
Poyet var ekki endilega besti leikmaður liðsins á sínum tíma, en það sem hann skorti aldrei var barátta. Hann lék einnig alltaf af mikilli ástríðu og það er óskandi að hann geti smitað núverandi leikmenn Spurs af þeim eiginleikum sem hann hafði sem leikmaður.






