Nýr þjálfari – sömu leikmenn

0
818

Þó svo að stjórn Tottenham hafi losað sig við Martin Jol, virðist það ekki hafa breytt gengi liðsins í bili að minnsta kosti. Það hefði mátt halda að botninum hafi verið náð, en eftir leik dagsins er maður ekki viss.

Clive Allen stjórnaði liðinu gegn Blackburn og stillti upp svipuðu liði og í síðasta leik Jol, þó komu Dawson og Keane aftur inn í liðið.

Fyrri hálfleikurinn var afar bragðdaufur þó að bæði lið hafi átt sín færi. Hápunkturinn var í raun fyrstu 5 mínútunar þegar leikmenn Spurs börðust af afli, en það stóð því miður aðeins í örfáar mínútur.

Robbie Keane kom Spurs yfir í upphafi síðari hálfleik með marki úr vítaspyrnu. Keane er í raun búinn að vera besti leikmaður liðsins hingað til, með 6 mörk í deildinni.

Sigurmark Blackburn á síðustu augnablikum leiksins var síðan svekkjandi en samt á einhvern hátt fyrirsjáanlegt. Andleysi leikmannanna er það sama og áður og það er greinilegt að Ramos þarf að sparka í rassinn á öllum leikmönnum liðsins.

Fitness þjálfari hans kom með honum og eru það góðar fréttir því að maður hefur það á tilfinningunni að lið Spurs sé í lélegasta formi allra liða í deildinni.

Ramos á mikið verk fyrir höndum. Hann mun ekki skorta leikmenn með hæfileika, heldur mun hann skorta leikmenn sem vilja deyja fyrir búninginn, menn sem elska félagið og eru til í að gera allt til að sigra. Undanfarið hefur þessi barátta verið týnd, nema hvað á Anfield.

Þannig að verk Ramos er einfalt: Að hrista saman 11 einstaklinga í 1 lið.