Sigur í UEFA Cup

0
762

Tottenham lagði danska liðið Álaborg í þriðja og næstsíðasta leik liðsins í G-riðli í UEFA Cup á White Hart Lane. Danska liðið náði tveggja marka forystu en með gífurlegri baráttu og vinnusemi náðu leikmenn Tottenham að svara fyrir sig og hirða öll þrjú stigin. Leiknum lauk með 3-2 sigri Tottenham og skoruðu þeir Berbatov, Malbranque og Bent mörkin og er liðið því enn ósigrað undir stjórn Ramos.

Ramos stillti upp nánast sama liði og spilaði leikinn gegn West Ham á sunnudaginn en þurfti þó að gera eina breytingu sökum meiðsla í vörninni. Robinson var sem fyrr í marki enda stóð hann sig vel í síðasta leik. Dawson var eini heili miðvörðurinn þar sem King, Gardner, Rocha og Kaboul voru allir meiddir og því var Chimbonda færður í miðvörðinn. Lee spilaði stöðu hægri bakvarðar og Bale var sem fyrr í vinstri bakverði. Á miðjunni voru þeir Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque og frammi sem fyrr, Berbatov og Keane.

          Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Tottenham. Leikmenn Álaborgar virtust koma mun ákveðnari til leiks og spiluðu ansi hraðan bolta. Og það tók þá ekki nema tvær mínútur að ná forystu í leiknum. Þeir fengu innkast nálægt marki Tottenham og leikmenn Spurs gerðu sig seka um slæma varnarvinnu sem leiddi til þess að Enevoldsen, leikmaður Álaborgar, skaut þrumuskoti fyrir utan vítateig sem endaði í netinu, algjörlega óverjandi fyrir Robinson. Kom þetta greinilega leikmönnum Spurs í opna skjöldu og leikmenn Álaborgar sóttu bara í sig veðrið. Leikur þeirra einkenndist af hraða og öryggi og var það ekki fyrr en á 14.mínútu að okkar menn áttu sæmilegt færi eftir góða sprett frá Jenas en úr því varð þó ekki mark. Þegar hálfleikurinn var hálfnaður fékk Prica, leikmaður Álaborgar, boltann þar sem hann hafði stungið sér inn fyrir vörn Tottenham, en þeir fóru leikandi létt með það í fyrri hálfleiknum. Lee fór í Prica sem féll við og vildu leikmenn þeirra fá víti en í endursýning sést að Lee fór í boltann og því réttur dómur. Auk þess var Prica einnig rangstæður. Leikmenn Spurs reyndu hvað þeir gátu að jafna leikinn en komust afar sjaldan mikið lengra en að vítateig danska liðsins, sem spiluðu góða vörn. Það kom eflaust fáum á óvart miðað við þróun leiksins að það voru leikmenn Álaborgar sem skoruðu næsta mark leiksins. Á 37.mínútu skaut Prica skoti að marki frá vinstri helmingi vallarins sem fór framhjá Robinson en hann var kominn nokkuð út fyrir markið, Risgard náði boltanum og kom honum í netið þrátt fyrir að vera með tvo varnarmenn Tottenham nálægt sér. Staðan orðin 2-0 og stefndi allt í sigur Álaborgar. Leikmenn Tottenham gerðu þó heiðarlegar tilraunir það sem eftir lifði hálfleiks og fékk Jenas ágætisfæri eftir sendingu frá Keane en rétt missti af boltanum í hendur markvarðarins Zaza en þeir lentu  í smá samstuði. Bale átti einnig góða aukaspyrnu en inn fór boltinn ekki. Staðan í hálfleik 2-0.

           Í hálfleik kaus Ramos að gera tvær breytingar á liðinu enda greinilegt að hlutirnir þyrftu að breytast ef liðið ætlaði sér einhver stig í leiknum. Bent kom inn á í stað Lee og Huddlestone kom inn á í stað Jenas sem virtist hafa orðið fyrir smávægilegum meiðslum í samstuðinu við markvörð Álaborgar í fyrri hálfleik. Þessi breyting á liðinu átti svo sannarlega eftir að borga sig því í fyrstu sókn seinni hálfleiks gaf Huddlestone frábæra sendingu á Berbatov sem átti ekki í vandræðum með að koma boltanum framhjá Zaza. Staðan orðin 2-1 og 46 sekúndur liðnar af seinni hálfleik. Huddlestone kom svo aftur við sögu 5 mínútum síðar þegar hann gaf góða sendingu á Lennon sem gaf beint á Berbatov á hægri kantinum. Berbatov lék framhjá varnarmanni Álaborgar og gaf á Bent en skot hans var varið af Zaza, en boltinn barst út í teig á Keane sem gaf boltann á Malbranque sem kom honum í netið. Staðan orðin jöfn 2-2 og einungis 5 mínútur liðnar af seinni hálfleik. Leikmenn Álaborgar voru þó ekki algjörlega hættir og Enevoldsen átti hættulegt færi sem fór rétt framhjá en það var svipað skot og hann skoraði úr í fyrri hálfleik. Á 66.mínútu dró þó til tíðinda. Tottenham fékk aukaspyrnu sem Bale tók og gaf fyrir. Zaza náði að blaka boltanum frá en Lennon brást vel við, náði boltanum og kom honum fyrir markið á fjarstöngina þar sem Bent tók við boltanum og kom honum í netið. Staðan orðin 3-2 fyrir Tottenham. Segja má að nánast gjörólíkt lið hafi mætt í síðari hálfleikinn og þeir voru ekki á því að hætta þrátt  fyrir að vera komnir yfir. Lennon átti mjög gott skot að marki sem Zaza rétt náði að verja og Malbranque komst í dauðafæri en skaut framhjá. Boateng kom svo inná fyrir Berbatov en fleiri urðu mörkin þó ekki í þessum leik.  

         Tottenham er því komið með 6 stig í riðlinum eftir 3 leiki og er sem stendur á toppi riðilsins. Síðasti leikur liðsins er svo gegn Anderlecht á útivelli þann 6. desember en svo situr liðið hjá í lokaumferðinni. Möguleikar liðsins að komast áfram eru nokkuð góðir en þrjú lið fara áfram og sl. 3 ár hefur það einungis einu sinni gerst að lið sem hefur fengið 6 stig hefur ekki komist áfram.

Lið Spurs: Robinson, Lee (Bent), Dawson, Chimbonda, Bale, Lennon, Jenas (Huddlestone), Zokora, Malbranque, Berbatov (Boateng), Keane.

Ónotaðir varamenn: Cerny, Stalteri, Taarabt, Tainio.

 

DEILA
Fyrri fréttMiðapantanir
Næsta fréttEkkotto frá út tímabilið