Tottenham lagði danska liðið Álaborg í þriðja og næstsíðasta leik liðsins í G-riðli í UEFA Cup á White Hart Lane. Danska liðið náði tveggja marka forystu en með gífurlegri baráttu og vinnusemi náðu leikmenn Tottenham að svara fyrir sig og hirða öll þrjú stigin. Leiknum lauk með 3-2 sigri Tottenham og skoruðu þeir Berbatov, Malbranque og Bent mörkin og er liðið því enn ósigrað undir stjórn Ramos.
Ramos stillti upp nánast sama liði og spilaði leikinn gegn West Ham á sunnudaginn en þurfti þó að
Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Tottenham. Leikmenn Álaborgar virtust koma mun ákveðnari til leiks og spiluðu ansi hraðan bolta. Og það tók þá ekki nema tvær mínútur að ná forystu í leiknum. Þeir fengu innkast nálægt marki Tottenham og leikmenn Spurs gerðu sig seka um slæma varnarvinnu sem leiddi til þess að Enevoldsen, leikmaður Álaborgar, skaut þrumuskoti fyrir utan vítateig sem endaði í netinu, algjörlega óverjandi fyrir Robinson. Kom þetta greinilega leikmönnum Spurs í opna skjöldu og leikmenn Álaborgar sóttu bara í sig veðrið. Leikur þeirra einkenndist af hraða og öryggi og var það ekki fyrr en á 14.mínútu að okkar menn áttu sæmilegt færi eftir góða sprett frá Jenas en úr því varð þó ekki mark. Þegar hálfleikurinn var hálfnaður fékk Prica, leikmaður Álaborgar, boltann þar sem hann hafði stungið sér inn fyrir vörn Tottenham, en þeir fóru leikandi létt með það í fyrri hálfleiknum. Lee fór í Prica sem féll við og vildu leikmenn þeirra fá víti en í endursýning sést að Lee fór í boltann og því réttur dómur. Auk þess var Prica einnig rangstæður. Leikmenn Spurs reyndu hvað þeir gátu að jafna leikinn en komust afar sjaldan mikið lengra en að vítateig danska liðsins, sem spiluðu góða vörn. Það kom eflaust fáum á óvart miðað við þróun leiksins að það voru leikmenn Álaborgar sem skoruðu næsta mark leiksins. Á 37.mínútu skaut Prica skoti að marki frá vinstri helmingi vallarins sem fór framhjá Robinson en hann var kominn nokkuð út fyrir markið, Risgard náði boltanum og kom honum í netið þrátt fyrir að vera með tvo varnarmenn Tottenham nálægt sér. Staðan orðin 2-0 og stefndi allt í sigur Álaborgar. Leikmenn Tottenham gerðu þó heiðarlegar tilraunir það sem eftir lifði hálfleiks og fékk Jenas ágætisfæri eftir sendingu frá Keane en rétt missti af boltanum í hendur markvarðarins Zaza en þeir lentu í smá samstuði. Bale átti einnig góða aukaspyrnu en inn fór boltinn ekki. Staðan í hálfleik 2-0.
Í hálfleik kaus Ramos að
Tottenham er því komið með 6 stig í riðlinum eftir 3 leiki og er sem stendur á toppi riðilsins. Síðasti leikur liðsins er svo gegn Anderlecht á útivelli þann 6. desember en svo situr liðið hjá í lokaumferðinni. Möguleikar liðsins að komast áfram eru nokkuð góðir en þrjú lið fara áfram og sl. 3 ár hefur það einungis einu sinni gerst að lið sem hefur fengið 6 stig hefur ekki komist áfram.
Lið Spurs: Robinson, Lee (Bent), Dawson, Chimbonda, Bale, Lennon, Jenas (Huddlestone), Zokora, Malbranque, Berbatov (Boateng), Keane.
Ónotaðir varamenn: Cerny, Stalteri, Taarabt, Tainio.






