Nú rétt í þessu var Enska knattspyrnusambandið að hafna áfrýjun Tottenham út af rauða spjaldinu sem hann fékk gegn Birmingham á sunnudaginn var.
Tottenham fannst þetta rauða spjald í meira lagi ósanngjarnt og voru vongóðir að vinna þessa áfrýjun. Annað kom á daginn og mun þetta rauða spjald standa sem verður til þess að Keane er á leið í þriggja leikja bann og mun missa af deildarleikjum gegn Man City heima og Portsmouth úti ásamt því að missa af leik í Carling Cup, 8 liða úrslitum gegn Man City á útivelli.
Nú verða bara hinir framherjar Tottenham að standa sig í stykkinu í fjarveru Keane, en þess má til gamans geta að á þessu tímabili hefur Keane skorað 12 mörk eða jafnmörg mörk og Berbatov, Bent og Defoe til samans !!!






