Ledley King er í hópi varaliðsins sem mætir Fulham í kvöld. Það eru án efa gleðitíðindi í eyrum allra Spursara og vonandi styttist í að hann spili með aðalliðinu þar sem hans er sárt saknað. Einnig eru í hópnum Ricardo Rocha og Dorian Dervitte en þeir eru báðir að spila í fyrsta sinn eftir löng meiðsli.
Tottenham veitir ekki af að fá King tilbaka hið fyrsta, búnir að fá á sig 28 mörk í 15 leikjum í deildinni eða næstum 2 að meðaltali í leik !!!
Vonandi á King eftir að komast í gegnum þennan leik í heilu lagi.. en hann á eflaust töluvert langt í land með að vera tilbúinn fyrir aðalliðið, enda hefur hann ekki spilað fótbolta síðan í maí.
Hópurinn hjá Tottenham í varaliðsleiknum í kvöld er eftirfarandi :
Alnwick, Forecast, Riley, Dervite, Hughton, King, Rocha, Martin, Routledge, Rose, Pekhart, Dawkins, Berchiche, Hutton, O’Hara, Townsend.
Hægt verður að fylgjast með gangi mála í varaliðsleiknum á Official heimasíðu Tottenham …
www.tottenhamhotspur.com






