King spilaði 45 mínútur

0
752

Ledley King spilaði í kvöld sinn fyrsta leik eftir hnéaðgerð sem hann gekkst undir í sumar. Hann meiddist með landsliðinu í vor og hefur ekkert spilað síðan. Hann var í byrjunarliði varaliðs Tottenham sem heimsótti varalið Fulham á Craven Cottage. King lék allan fyrri hálfleikinn en Tottenham tapaði þó leiknum 1-0 með marki á lokamínútum leiksins.

King byrjaði í hjarta varnarinnar ásamt Rocha sem einnig var að spila sinn fyrsta leik eftir meiðsli, en hann gekkst undir aðgerð fyrr á tímabilinu. Var þetta í fyrsta sinn sem þeir tveir spila saman í miðri vörninni. Þeir stóðu sig báðir vel, áttu báðir möguleika á að skora í upphafi leiks en þeir fóru báðir af velli í hálfleik, en þá var staðan 0-0. Í hálfleik kom svo Dorian Dervite inná en hann er einnig að koma til baka úr ansi alvarlegum meiðslum. Lék hann allan seinni hálfleikinn og voru leikmenn Spurs óheppnir að fara tómhentir heim en Fulham skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.