Tottenham tryggði sér áframhaldandi þátttöku í Evrópukeppninni þegar þeir gerðu jafntefli við Anderlecht í Belgíu í gær. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og var það Berbatov sem skoraði mark Tottenham úr vítaspyrnu. Tottenham er því komið áfram í 32 liða úrslit þrátt fyrir að ein umferð sé eftir, en Tottenham situr hjá í þeirri umferð.
Ramos gerði nokkrar breytingar á liðinu frá því í leiknum við Birmingham. Lee kom í vinstri bakvörðinn í stað Bale sem er meiddur og Huddlestone kom inn í liðið í stað Kaboul sem varð eftir í London. Liðið var því þannig skipað að Robinson var í marki sem fyrr. Chimbonda og Lee voru bakverðir og Zokora tók stöðu miðvarðar við hlið Dawson. Miðjan var skipuð þeim Lennon, Jenas, Huddlestone og Malbranque og frammi voru þeir Bent og Keane, en þetta var einmitt síðasti leikur Keane áður en hann tekur út þriggja leikja bann.
Leikurinn fór rólega af stað og ekki mikið um marktækifæri. Leikmenn virtust taka sér góðan tíma til að meta andstæðinginn og einnig var notuð ný tegund af bolta í þessum leik og spurning hvort það hafi haft einhver áhrif á menn. Fyrsta hættulega færið fékk Anderlecht þegar Mpenza skaut að marki en Robinson sá við honum. Jenas átti ágætisfæri á hinum helmingi vallarins en markvörður Anderlecht var einnig vel vakandi. Jahaz átti svo gott skot að marki Tottenham en Robinson átti góðan leik og varði vel. Undir lok hálfleiksins fór að færast aðeins meiri harka í leikinn og nældi Jenas sér t.a.m. í gult spjald undir lok fyrri hálfleiks. Á síðustu mínútu fyrri hálfleiks skall svo hurð nærri hælum við mark Tottenham. Wasilewski átti fínt skot að marki sem Robinson náði að verja en Frutos náði frákastinu og skaut að marki en skotið fór rétt framhjá. Staðan í hálfleik var því 0-0 eftir ansi slakan og tíðindalítinn fyrir hálfleik.
Í síðari hálfleik áttu bæði lið ágætis færi á upphafs mínútunum. Keane og Chimbonda áttu báðir skot að marki Anderlecht og Frutos og Mpenza áttu skot að marki Tottenham en ekkert kom út úr því. Ljóst var að þörf var á breytingu í Tottenham liðinu enda lítið að gerast. Ramos kaus því að taka Keane af velli og setja Berbatov inná en hann byrjaði á bekknum. Tíu mínútum síðar fékk Tottenham aukaspyrnu á hættulegum stað sem Berbatov tók og þurfti markvörður Anderlecht að taka á honum stóra sínum til að verja skotið. En tveimur mínútum síðar kom fyrsta mark kvöldsins. Mpenza gaf boltann fyrir mark Tottenham frá hægri kantinum en Dawson gerði mistök með því að láta boltann renna framhjá sér og þar kom Goor hlaupandi, náði boltanum og skoraði framhjá Robinson. Staðan orðin 1-0 og Tottenham hingað til ekki líklegir til að skora. En jöfnunarmarkið lét þó ekki bíða lengi eftir sér. Jenas var felldur inni í vítateig andstæðinganna nokkrum mínútum síðar og dómarinn var ekki í vafa og flautaði vítaspyrnu. Berbatov steig á vítapunktinn og skoraði örugglega framhjá Zitka. Defoe kom svo inná í stað Bent og stuttu síðar stóð Robinson enn einu sinni fyrir sínu í markinu og varði gott skot frá Thereau. Defoe átti sína spretti og átti tvö skot að marki með stuttu milli, það síðara varði Zitka með naumindum rétt yfir markið. Þegar líða fór að lokum hafði Boateng gert sig tilbúinn til að koma inná en þá fékk Lee spark í hausinn og varð að fara af velli, hálf vankaður. Stalteri var þá sendur inná í staðinn og leiknum lauk svo með jafntefli, 1-1. Á lokamínútunni gerðist það leiðindaatvik að stuðningsmenn Anderlecht hófu að kasta ýmsum hlutum inná völlinn í átt að leikmönnum Tottenham og fékk t.d. Zokora kveikjara í hausinn og þurfti aðhlynningu við það. Eftir leik kom Robinson svo með járnrör ásamt öðrum hlutum til fjórða dómara og hefur UEFA nú gefið út að þetta atvik verði skoðað og má Anderlecht búast við refsingu vegna málsins.
En þetta stig var nóg til þess að tryggja Tottenham áfram í 32 liða úrslitin en ein umferð er ennþá eftir í riðlinum. Tottenham situr þó hjá í þeirri umferð en þá ákvarðast röð liða í riðlinum. Dregið verður þann 21. desember í 32 liða og 16 liða úrslitin en sigurlið riðilsins mætir liði sem endar í þriðja sæti í einhverjum öðrum riðli og liðið í öðru sæti mætir einhverju af liðunum sem falla úr meistaradeildinni. Lið frá sama landi geta þó ekki mæst í 32 liða úrslitum.
Lið Tottenham: Robinson, Chimbonda, Dawson, Zokora, Lee (Stalteri), Lennon, Jenas, Huddlestone, Malbranque, Bent (Defoe), Keane (Berbatov). Ónotaðir varamenn: Cerny, Boateng, Tainio, Taarabt