Þriðji deildarsigur tímabilsins

0
605

Tottenham vann sinn þriðja deildarsigur á tímabilinu þegar þeir tóku á móti Manchester City á White Hart Lane. Leiknum lauk með 2-1 sigri og voru það þeir Chimbonda og Defoe sem skoruðu mörk Tottenham

Ramos gerði breytingu á liðinu frá leiknum við Anderlecht í vikunni. Kaboul og Bent komu inn í byrjunarliðið fyrir Huddlestone og Keane, sem hóf þriggja leikja bann sitt í dag. Liðið var þannig skipað að Robinson var í marki og Chimbonda, Dawson, Kaboul og Lee skipuðu vörnina. Á miðjunni voru þeir Lennon, Jenas, Zokora og Malbranque og frammi byrjuðu þeir Bent og Berbatov.

Leikmenn Spurs komu mun ákveðnari til leiks og til að byrja með var mun meira sótt á mark City manna. Berbatov, Bent, Lee, Dawson og Malbranque áttu allir ágætis skot að marki og mátti Isaksson nokkrum sinnum hafa sig allan við að verja. Jenas átti svo ágætis möguleika á að skora en Bent fór illa að ráði sínu. Berbatov gaf góða sendingu inn í teig á Bent sem ákvað að skjóta á markið frá hægra horni vítateigsins við enda marklínunnar. Boltinn fór beint til Isaksson en Jenas hafði komið hlaupandi að markinu og var algjörlega óvaldaður. Átti hann ansi erfitt með að skilja hvers vegna Bent kaus að skjóta á markið í stað þess að gefa boltann fyrir. Þegar líða tók á hálfleikinn vaknaði örlítið líf á meðal leikmanna City og þeir gerðu nokkrar tilraunir til að skora en ekkert sem olli Robinson neinum vandræðum, það hættulegasta fór í hliðarnetið eftir hornspyrnu. En það virtist þó hafa smá áhrif á leikmenn Spurs að City menn fóru að sækja enda vörnin verið hríðlek í undanförnum leikjum og bar á smá stressi hjá leikmönnum. En á lokamínútu fyrri hálfleiks dró til tíðinda. Berbatov var felldur vinstra megin fyrir utan teiginn. Jenas tók aukaspyrnuna og barst boltinn til Berbatov sem skaut að marki og þar stóð Chimbonda við hlið Isaksson og hjálpaði boltanum í netið. Leikmenn City vildu fá hendi dæmda á Chimbonda en dómarinn var ekki á sama máli. Í endursýningu er erfitt að sjá hvort boltinn fór í hönd hans eður ei en einnig er hugsanlegt að hann hafi verið rangstæður en það er þó einnig erfitt að meta. Markið var engu að síður dæmt gilt og staðan því orðin 1-0 Tottenham í vil og héldu þeir með forystuna inn í búningsklefa í hálfleik.

Í upphafi seinni hálfleiks munaði svo litlu að Berbatov bætt við marki eftir gott skot í hornið en Isaksson rétt náði að teygja sig í boltann. Harka fór að færast í leikinn og leikmenn fóru að berjast mun meira þegar líða tók á hálfleikinn. A 61.mínútu jöfnuðu svo City menn leikinn. Martin Petrov tók hornspyrnu og gaf inn í teiginn. Bianchi sem hafði nýlega komið inná hljóp frá Bent sem átti að dekka hann, stökk upp og skallaði í netið framhjá Robinson. Staðan orðin 1-1 og kveikti þetta mark líf í leikmönnum City. Þeir virtust staðráðnir í að bæta við marki og hirða öll stigin og leikmönnum Spurs var nokkuð brugðið enda búnir að hafa yfirhöndina meira og minna í öllum leiknum. Sjö mínútum síðar ákvað Ramos að gera sína fyrstu breytingu. Boateng kom inná í stað Lennon sem fór að velli. Skiptingin virtist hafa tilætluð áhrif, leikmenn hertu upp hugann og komust á ný inn í leikinn. Jenas átti dauðafæri þegar hann skaut að marki eftir fyrirgjöf frá Malbranque en boltinn fór rétt yfir markið. Á 76.mínútu kom Defoe svo inná í stað Bent sem hafði ekki átt sinn besta leik. Einungis fimm mínútum síðar breyttist leikurinn til muna. Stephen Ireland var rekinn af velli með beint rautt spjald eftir tveggja fóta tæklingu á Lee. Dómurinn var hárréttur og Ireland reyndi ekki einu sinni að mótmæla heldur hélt beint inn í sturtu. Oft hefur það ekki reynst Tottenham til lukku að vera manni fleiri á vellinum en í þetta skiptið var þó annað uppi á teningnum. Mínútu síðar skaut Malbranque að marki frá vinstri hluta vítateigsins en boltinn fór í stöngina. Boltinn fór þó út í teiginn aftur og þar var enginn annar en Defoe og hann gerði allt rétt og kom boltanum framhjá Isaksson og brutust út þvílík fagnaðarlæti á vellinum. Ramos kaus svo að gera eina skiptingu í viðbót og setti Tainio inná þegar uppbótartími hófst til að þétta miðjuna og eftir fjórar langar viðbótarmínútur flautaði dómarinn leikinn af og sigur í höfn. Þessi þrjú stig komu liðinu upp úr 16.sæti og í það þrettánda með 15 stig. Lokastaðan 2-1.

Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Dawson, Kaboul, Lee, Lennon (Boateng), Jenas, Zokora, Malbranque, Bent (Defoe), Berbatov (Tainio). Ónotaðir varamenn: Cerny, O´Hara.