Tottenham gaf það út í dag að Bale verði líklegast frá keppni næstu 3 mánuði sökum meiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn Birmingham. Ekki er nákvæmlega vitað hversu alvarleg meiðslin eru en það mun koma í ljós á næstu dögum. Verður hann svæfður og fóturinn skoðaður vandlega og meiðslin metin til fulls. Þegar meiðslin hafa jafnað sig mun hann rólega byrja að æfa en sökum ungs aldurs vill félagið ekki setja hann of fljótt inn í liðið á ný til þess að koma í veg fyrir að meiðslin verði honum framtíðarvandi. Ljóst er þó að við fáum ekki að sjá Bale á vellinum fyrr en á næsta ári en við óskum honum góðs bata.






