Fyrsti útisigurinn í deildinni

0
723

Tottenham vann sinn fyrsta útisigur í deildinni þegar þeir heimsóttu Harry Redknapp og félaga í Portsmouth. Sömuleiðis var þetta fyrsti tapleikur Portsmouth á heimavelli í deildinni á þessari leiktíð en lokatölur leiksins voru 0-1 og var það Berbatov sem skoraði eina mark leiksins.

Ramos þurfti að gera breytingu á liði sínu frá fyrri leik. Dawson gat ekki verið með vegna flensu og því kom Boateng inn í liðið í staðinn. Á milli stanganna stóð sem fyrr Robinson, vörnin var skipuð þeim Chimbonda, Zokora, Kaboul og Lee. Á miðjunni voru þeir Lennon, Jenas, Boateng og Malbranque og frammi byrjuðu þeir Berbatov og Bent og var því ekki pláss fyrir Defoe í byrjunarliðinu þrátt fyrir að hafa skorað sigurmark síðasta leiks. 

Fyrsta færi leiksins kom frá Portsmouth en til gamans má geta að á leikskýrslu þeirra voru fjórir fyrrum Spursarar, Campbell, Pamarot, Mendes og Davis. Fyrsta færið kom þó frá Utaka en Jenas var fljótur til baka og kom í veg fyrir frekari hættu. Einnig voru þó færin á hitt markið og átti Bent ágætis færi sem fór vel yfir. Á 16.mínútu brutust út mikil fagnaðarlæti meðal stuðningsmanna Spurs þegar Malbranque kom boltanum framhjá James í markinu en gleðin stóð ekki lengi yfir þar sem markið var dæmt af sökum rangstöðu. Lennon hafði gefið fyrir á Boateng sem skaut að marki, James varði hins vegar boltann sem barst til Malbranque og átti hann ekki í erfiðleikum með að skjóta framhjá James. En þegar Boateng skaut að marki þá var Malbranque rangstæður og hagnaðist því af stöðu sinni þegar boltinn kom frá James. Markið því réttilega dæmt af. Diop og Muntari áttu færi að marki Tottenham en Robinson stóð fyrir sínu og hleypti boltanum ekki framhjá sér. Á hinum helmingi vallarins þurfti James þó að hafa aðeins meira fyrir sínu kaupi. Berbatov, Bent og Lennon áttu fín færi en inn vildi boltinn þó ekki og var því staðan jöfn 0-0 í hálfleik. 

Seinni hálfleikur hófst á svipuðum nótum og sá fyrri og áttu bæði lið færi þó ekki væri mikið um dauðafæri. Malbranque, Lennon, Bent og Berbatov áttu allir færi að marki Portsmouth en einna hættulegast færi Pompey manna kom frá Nugent sem kom inná sem varamaður. Á 74. mínútu kaus Ramos að gera skiptingu á liðinu og kom Defoe þá inná í stað Bent og nokkrum mínútum síðar fór Boateng af velli og inná kom Jamie O´Hara en þetta var hans fyrsti leikur í ensku úrvalsdeildinni. Þessar skiptingar áttu eftir að verða til góðs en það leið ekki á löngu þar til O´Hara gaf góða sendingu á Defoe sem skaut boltanum yfir James en boltinn fór því miður líka yfir markið. O´Hara var svo aftur á ferðinni á 81.mínútu en hann gaf þá góða sendingu á Lennon sem var staðsettur á hægri kantinum við vítateiginn. Lennon gaf svo fyrir markið og fór boltinn rétt yfir höfuðið á Campbell og þar kom Berbatov á sprettinum og átti ekki í erfiðleikum með að koma boltanum í netið. Staðan orðin 1-0 fyrir Tottenham. O´Hara var ekki hættur því hann átti ansi hættulegt færi undir lok leiksins sem Kranjcar náði að komast í veg fyrir en það kom ekki að sök, leiknum lauk með sigri Tottenham 1-0 og var þetta mark fimmta mark Berbatov á tímabilinu í öllum keppnum.

Með þessum fyrsta útisigri tímabilsins í deildinni færðist liðið upp um 1 sæti og situr nú í 12.sæti deildarinnar.  Næsti leikur er svo einn af þeim stærstu á tímabilinu en það er grannaslagur við Arsenal næstkomandi laugardag og er það upphafið af annasamri jólatörn liðsins.

Leikmenn Spurs: Robinson, Chimbonda, Zokora, Lee, Lennon (Tainio), Jenas, Boateng (O´Hara), Malbranque, Berbatov, Bent (Defoe). Ónotaðir varamenn: Cerny, Stalteri.