Það var sannkölluð jólamarkaveisla á White Hart Lane þegar leikmenn Fulham mættu í heimsókn. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar liðið gekk inn á völlin þar sem fremstur í flokki var Ledley King en þetta var hans fyrsti leikur á tímabilinu eftir ansi löng og erfið meiðsli. Leiknum lauk svo með sigri Tottenham 5-1 en mörk Tottenham skoruðu þeir Robbie Keane (2), Tom Huddlestone (2) og Jermain Defoe.
Ramos gerði nokkrar breytingar á liðinu, þar sem King og Huddlestone komu inn í byrjunarliðið. Robinson var sem fyrr í marki, bakverðir voru þeir Chimbonda og Lee og Kaboul og King spiluðu í miðvarðarstöðunum. Lennon og Malbranque léku á köntunum og Huddlestone og O´Hara spiluðu á miðri miðjunni en sá síðari hefur komið á óvart með góðri frammistöðu undanfarið og haldið sæti sínu. Frammi voru svo þeir Berbatov og Keane. Á bekknum sátu þeir, Cerny, Boateng, Taarabt, Defoe og Bent.
Það kætti marga að sjá Ledley King leiða liðið út á völlinn á ný enda verið ansi lengi frá vegna meiðsla. Fyrir leikinn stóðu leikmenn og áhorfendur á fætur og klöppuðu í mínútu til minningar um Tommy Harmer, fyrrum leikmann Tottenham sem lést í gær 79 ára að aldri og leikmenn Spurs léku með svört sorgarbönd í leiknum. Leikurinn fór nokkuð rólega af stað og það var ekki fyrr en á 24. mínútu að fyrsta alvöru færið leit dagsins ljós þegar Berbatov átti skot að marki eftir sendingu frá Malbranque en Niemi varði vel. Tveimur míntum síðar var Malbranque svo ansi nálægt því að skora eftir sendingu frá Chimbonda. Huddlestone tók aukaspyrnu sem lenti á hausnum á Chimbonda og hann skallaði boltann á Malbranque sem skaut þrumuskoti að marki en lenti beint í stönginni. Boltinn skaust þó aftur út í teig og Keane var á réttum stað og kom boltanum framhjá Niemi. Staðan orðin 1-0 heimamönnum í vil. Leikmenn Fulham virtust andlausir og Robinson hafði ekki mikið að gera í fyrri hálfleik. Hins vegar áttu leikmenn Spurs möguleika á að bæta við og áttu Berbatov og Keane ágætis sókn en úr henni varð þó ekki mark. Í uppbótartíma bætti Huddlestone þó við marki eftir sendingu frá Berbatov með þrumuskot vel fyrir utan teig og Niemi sá boltann seint og náði ekki að koma í veg fyrir markið. Staðan því orðin 2-0 og þannig stóð í hálfleik.
Seinni hálfleikur byrjaði ekki ósvipað hinum fyrri og lítið gerðist á fyrstu mínútunum. Eftir um tíu mínútna leik fékk Keane fínt færi og skaut föstu skoti að marki en Niemi var rétt staðsettur og varði vel. Fulham fór að leggja meira í leik sinn og á 60.mínútu tókst þeim að minnka muninn með marki frá Dempsey. Staðan því orðin 2-1 en það stóð þó ekki lengi. Aðeins tveimur mínútum síðar tók O´Hara hornspyrnu og Berbatov skallaði að marki en boltinn fór beint í hnéð á Keane og inn í markið. Staðan orðin 3-1. Á 64.mínútu var svo komið að fyrstu skiptingu Ramos en þá kom Boateng inná fyrir Berbatov væntanlega til að hvíla hann fyrir komandi átök enda mjög annasöm dagskrá á næstunni. Fimm mínútum siðar fór svo Keane einnig af velli og inná kom Defoe. Huddlestone bætti svo við forskot Tottenham á 71.mínútu en hann skaut löngu skoti úr teignum framhjá Niemi í markinu eftir sendingu frá Lennon. Staðan orðin 4-1 fyrir heimamönnum. Þremur mínútum síðar stóðu allir áhorfendur upp og klöppuðu ákaft fyrir fyrirliðanum þegar hann var tekinn af velli og inná kom Taarabt í hans stað. Chimbonda fór þá í miðvörðinn, Lee í hægri bakvörðinn, O´Hara í vinstri bakvörðinn, Taarabt á vinstri kantinn og Malbranque inn á miðjuna. Taarabt var samkvæmur sjálfum sér og sýndi skemmtileg tilþrif á vellinum. Fimm mínútum fyrir leikslok fékk leikmaður Fulham, Moritz Volz, sitt annað gula spjald eftir brot á Malbranque og var rekinn af velli. Huddlestone tók aukaspyrnuna og skaut framhjá varnarveggnum en náði ekki að setja nægan snúning á boltann til að koma honum í netið. Á lokamínútu leiksins gaf Lennon sendingu á Defoe sem kom boltanum á Huddlestone inni í teignum. Hann hins vegar kaus að gefa boltann aftur á Defoe í stað þess að skjóta sjálfur og Defoe þakkaði vel fyrir sig með því að skora fimmta og síðasta mark Tottenham í þessum leik. Leiknum lauk því með 5-1 sigri og má segja að þetta hafi verið sannarlega góð jólagjöf frá Tottenham, bæði er Kóngurinn kominn til baka sem og sannkölluð markaveisla.
Lið Spurs: Robinson, Chimbonda, Kaboul, King(Taarabt), Lee, Lennon, O´Hara, Huddlestone, Malbranque, Berbatov (Boateng), Keane (Defoe). Ónotaðir varamenn: Cerny, Bent.






