Tottenham hefur tilkynnt að samningar hafa tekist við Cardiff City um kaup á Chris Gunter, leikmanni þeirra. Samningurinn tekur gildi 1.janúar þegar félagaskiptaglugginn opnast en kaupverð hefur ekki verið gefið upp. Það er þó talið vera í kringum 4 milljónir punda, hluti af því er greiddur strax út en restin eftir árangri. Gunter, sem aðeins er 18 ára, spilar stöðu bakvarðar og getur spilað báðum megin en kýs þó frekar að spila hægra megin.
Chris Gunter hóf að spila með Cardiff þegar hann var átta ára gamall og fór því upp í gegnum unglingastarfið hjá þeim. Í ágúst 2006 spilaði hann svo sinn fyrsta leik með aðalliðinu í deildarbikarnum gegn Barnet, einungis 17 ára gamall. Og sökum meiðsla í herbúðum Cardiff fékk hann fljótt tækifæri með aðalliðinu og hefur alls leikið 33 leiki fyrir Cardiff. Hæfileikar hans fóru ekki framhjá þjálfara Wales og hefur hann nú þegar spilað þrisvar sinnum fyrir A-landslið Wales. Fyrsti leikur hans var gegn Nýja Sjálandi en hinir tveir gegn Írlandi og Þýskalandi.






