Tap á Brúnni

0
698

Tottenham fór heim án stiga úr viðureign liðsins við Chelsea á Stamford Bridge. Chelsea vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu og voru það þeir Bellettio og Wright-Phillips sem sáu um markaskorun í leiknum.

     Ramos gerði smá breytingu á liðinu, aðallega vegna leikbanna miðjumanna. Cerny hélt sæti sínu í liðinu og vörnin var skipuð þeim Chimbonda, Dawson, King og Lee. Á köntunum voru sem fyrr Lennon og Malbranque en á miðri miðjunni voru þeir O´Hara og Boateng en Jenas tók út eins leiks bann vegna fimm gulra spjalda, Huddlestone tók út leik tvö af þremur í banni og Zokora var farinn í Afríkukeppnina. Frammi byrjuðu þeir Keane og Berbatov. Á bekknum voru þeir Robinson, Defoe, Taarabt, Kaboul og Gunter.

     Strax á 4.mínútu var hætta við mark Tottenham og kemur það fáum á óvart að það tengdist föstu leikatriði. Cole tók aukaspyrnu af vinstri kantinum og gaf fyrir en Cerny náði að lokum að verja vel. Bæði lið gerðu svo tilraunir til að sækja en lítið var um marktækifæri. Á 19.mínútu kom svo fyrsta mark leiksins. Belletti skoraði þá enn eitt glæsimarkið sem Tottenham liðið fær á sig í vetur. Belletti fékk boltann úti á miðjum velli og hljóp með hann í átt að markinu án þess að nokkur gerði tilraun í að ná af honum boltanum. Þegar hann svo nálgaðist teiginn ákvað hann svo bara að skjóta á markið og smellhitti boltanum efst í hornið, óverjandi fyrir Cerny. Þetta mark skrifast algjörlega á Tottenham liðið sem heild þar sem enginn fór út í manninn og fékk hann allan þann tíma sem hann vildi að koma sér í góða skotstöðu og skjóta á markið. Staðan því orðin 1-0 fyrir Chelsea. Tottenham gafst þó ekki upp þrátt fyrir að róðurinn væri nú orðinn erfiðari. Malbranque fékk ágætist færi tíu mínútum síðar eftir fyrirgjöf frá Lennon en Cech varði boltann glæsilega. Boateng fékk stuttu síðar gott færi en skot hann fór rétt yfir stöngina. Þremur mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks skoraði Ballack svo mark fyrir Chelsea en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Staðan var því 1-0 í hálfleik.

     Seinni hálfleikur hófst á svipuðum nótum og sá fyrri hafði verið. Bæði lið gerðu tilraunir til að skora en ekki var mikið um dauðafæri. Þegar klst. var liðin af leiknum var Malbranque skipt út af og inná í staðinn kom Taarabt. Malbranque fékk gult spjald í leiknum og var það hans fimmta gula spjald á leiktíðinni og verður hann því í banni næstu helgi gegn Sunderland. Anelka kom svo inná fyrir Chelsea í sínum fyrsta leik og fékk frábært færi en Cerny varði meistaralega. Á 70. mínútu fékk Tottenham gott færi til að jafna leikinn. Lennon var felldur á vítateigslínunni og vildu margir fá dæmda vítaspyrnu en dómarinn dæmdi aukaspyrnu á línunni. Berbatov tók spyrnuna sem fór rétt yfir þverslánna. Á 77.mínútu tók Ramos O´Hara útaf og setti Defoe inná og gerði þar með tilraun til að krækja í stig í leiknum með þrjá framherja inná. Keane bakkaði þó lítillega fyrir aftan Berbatov og Defoe. Tottenham átti svo góða tilraun að marki þar sem Boateng gaf flotta sendingu fyrir markið sem ætluð var Keane en sá síðarnefndi náði ekki boltanum sökum þess að Alex ýtti við honum en Wiley sá það atvik ekki. Strax á eftir þessu hljóp Cole upp kantinn lék á Lee og gaf boltann fyrir markið þar sem Wright-Phillips gerði allt rétt og skoraði framhjá Cerny. Fleiri urðu mörkin ekki og lauk leiknum með sigri Chelsea 2-0 og ekki batnar árangur liðsins gegn toppliðunum.

Lið Spurs: Cerny, Chimbonda, Dawson, King, Lee, Lennon, O´Hara(Defoe), Boateng(Kaboul), Malbranque(Taarabt), Keane, Berbatov.  Ónotaðir varamenn: Robinson, Gunter.

DEILA
Fyrri fréttGhaly lánaður til Derby
Næsta fréttSigur í FA CUP