Sigur í FA CUP

0
778

Tottenham sigraði í gær lið Reading 0-1 á útivelli í endurteknum leik í 3. umferð FA CUP.  Eina mark leiksins skoraði Robbie Keane á 15. mínútu.

Leikurinn þótti mjög tilþrifalítill og lítið um marktækifæri.  Undir lok leiksins voru Reading nálægt því að jafna þegar S.Hunt átti hörkuskot í þverslá Tottenham marksins,  og svo stuttu seinna var S.Malbranque nálægt því að auka forskot okkar í 0-2 þegar markvörður Reading varði gott skot hans í þverslánna.
Chris Gunter, nýr leikmaður Tottenham spilaði í gær sinn fyrsta leik eftir að hafa flutt sig um set frá liði Cardiff nú um áramótin.
Margir sterkir leikmenn Tottenham voru fjarverandi í gær, af ýmsum ástæðum.

Tottenham mætir feykisterku liði Man Utd á Old Trafford í 4. umferð keppninnar og fer leikurinn fram 27.janúar.