Ég vill byrja á að biðjast afsökunar á að lítið hefur verið skrifað hér á síðuna síðan tímabilinu lauk. Ástæðan er að ég hef verið að flytja og því ekki haft tímatil að sinna þessu. Reyndar hefur verið frekar rólegt í kringum Tottenham síðan en þó ekki alveg.
Búið er að selja Simon Davies til Everton og er þar með búið að staðfesta sögur sem gengu í vetur í þessa átt. Davies lék 154 leiki fyrir Tottenham og gerði í þeim leikjum 24 mörk. Í staðinn er búið að ganga frá kaupum á kanadískum bakverði frá Werder Bremen. Hann er 27 ára og heitir Paul Stalteri. Hann er kanadískur landsliðsmaður og reynslu bolti og vonandi góð viðbót við þá Teemu Taunio, Tom Huddlestone og Cullum Davenport sem allir mæta til leiks í júlí þegar undirbúningur hefst fyrir næsta tímabil.
Nokkrir leikmenn hafa verið leystir undan samningi við félagið en þeir eru Rohan Ricketts, Paul O’Donoghue, Nicky Eyre, Michael Malcolm og Owen Price. Þá hefur lánsamningur David Limbersky runnið út og er hann farinn til síns heima. Ricketts var eini leikmaðurinn af þessum sem lék í aðalliðnu.
Liðið fór í æfingarferð til Mauritius og lék þar tvo leiki sem unnust báðir.
Að lokum má geta þess að það ræðst þann 5. júní hvort við fáum "Fair play" sæti í UEFA bikarnum. HJ






