Tottenham vann sinn annan útisigur í stjórnartíð Ramos þegar liðið lagði botnlið Derby á Pride Park. Leikurinn var ekki hinn skemmtilegasti fyrir áhorfendur en leikmenn Tottenham tryggðu sér öll stigin á síðasta hálftímanum í leiknum og unnu leikinn með þremur mörkum gegn engu. Mörkin skoruðu þeir Robbie Keane, Younes Kaboul og Dimitar Berbatov úr víti.
Ramos gerði ekki miklar breytingar á liðinu en helst ber að nefna að Darren Bent kom inn í liðið eftir langvarandi meiðsli. Cerny stóð á milli stanganna og varnarlínan fyrir framan hann var skipuð þeim Hutton, Dawson, Huddlestone og Chimbonda sem byrjaði í vinstri bakverðinu eftir góða frammistöðu þar í síðasta leik. Á miðjunni voru þeir Lennon, Jenas, Boateng og Malbranque og frammi byrjaði Keane við hlið Bent. Á bekknum voru þeir Robinson, Kaboul, Gunter, O´Hara og Berbatov.
Leikurinn einkenndist eins og áður sagði ekki af skemmtilegri spilamennsku en þó voru nokkur færi. Á 4.mínútu kom fyrsta skot Derby manna þegar Miller skaut að marki en Cerny átti ekki í vandræðum með að verja það skot en einnig var um rangstöðu að ræða. Carroll fékk líka að hita hanskana sína þegar Bent átti skot að marki. Derby lá mjög aftarlega með lið sitt sem gerði leikmönnum Tottenham erfitt fyrir að sækja að markinu. En einstaka færi voru þó ansi hættuleg og var Keane nálægt því að skora en Carroll varði meistaralega. Þegar um 20 mínútur voru liðnar af leiknum höfðu bæði lið gert skiptingu á miðverði vegna meiðsla. Hjá Tottenham þurfti Dawson að yfirgefa völlinn og lítur allt út fyrir að hann verði frá í 2-3 vikur þar sem vöðvi í læri mun hugsanlega hafa rifnað en læknar eiga eftir að meta það betur í dag. Í stað Dawson kom Kaboul inná en hann hefur fallið aftur í goggunarröðinni undanfarið. Þegar hálftími var liðinn af leiknum áttu Derby menn ansi hættulega sókn. Boateng sem ekki var að spila sinn besta leik braut á leikmanni Derby á miðjum vellinum. Pearson gaf boltann á Barnes sem var fyrir framan markið og skaut framhjá Cerny en boltinn fór einnig framhjá markinu. Stuttu síðar gerði dómarinn sig sekan um mistök þegar Lennon var greinilega felldur rétt utan við vítateig á hættulegum stað en dómarinn kaus að láta leikinn halda áfram. Stuttu fyrir hlé átti Kaboul svo sæmilegt færi eftir fyrirgjöf frá Lennon en Carroll var með hlutina á hreinu í markinu. Staðan var því 0-0 í hálfleik í slökum leik hjá báðum liðum.
Ramos gerði strax breytingu í hálfleik og tók Boateng af velli og inná í hans stað kom Jamie O´Hara. En það voru þó Derby menn sem áttu fyrsta færið í seinni hálfleik en hættan var þó ekki mikil og Cerny hreinsaði frá. En leikmenn Tottenham ætluðu sér ekki að fara tómhentir heim og reyndu að ná forystunni í leiknum. Hutton átti góða fyrirgjöf eftir sendingu frá Jenas en Carroll var á undan Huddlestone í boltann. Þegar klukkustund var liðin af leiknum gerði Ramos sína þriðju og síðustu breytingu á liðinu. Bent fór af velli enda ekki í sínu besta formi eftir tæpa tveggja mánaða fjarveru vegna meiðsla og inná í hans stað kom Berbatov. Keane átti skot í stöngina en aðstoðardómarinn flaggaði rangstöðu en á 67 mínútu kom hann þó boltanum í netið. Malbranque gerði vel í að koma sér í ágæta skotstöðu vinstra megin í teignum og skaut að markinu en Carroll varði boltann. Keane var þá vel staðsettur og var fyrstur í boltann og skoraði sitt 19 mark á tímabilinu. Þrátt fyrir þetta mark var Carroll búinn að eiga fínan leik og átti eftir að sýna góða markvörslu síðar í leiknum. Jenas og Berbatov áttu sín færi sem Carroll sá glæsilega við. En á 81.mínútu gat Carroll lítið gert við sókn Tottenham. Lennon tók hornspyrnu fyrir Spurs og Chimbonda skallaði léttilega boltann fyrir fætur Kaboul sem lék á Miller og þrumaði boltanum framhjá Carroll. Derby menn voru komnir mun framar á völlinn en tilraunir þeirra til að jafna leikinn runnu allar út í sandinn. Í uppbótartíma kom svo þriðja og síðasta markið þegar dæmd var vítaspyrna á Derby eftir að Fagan handlék boltann inni í teig. Berbatov steig á vítapunktinn og átti ekki í neinum vandræðum með að koma boltanum framhjá Carroll. Lokatölur 0-3 og góður útisigur í höfn en þetta var síðasti deildarleikur liðsins í febrúar þar sem framundan eru bikarhelgar og evrópuleikir.
Lið Spurs: Cerny, Hutton, Dawson(Kaboul), Huddlestone, Chimbonda, Lennon, Jenas, Boateng(O´Hara), Malbranque, Keane, Bent(Berbatov). Ónotaðir varamenn: Robinson, Gunter.






