Hálfur sigur unninn

0
722

Tottenham vann nauman útisigur á Slavia Prag í fyrri viðureign liðanna í 32.liða úrslitum UEFA cup. Leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham en seinni leikurinn fer fram að viku liðinni. Mörk Tottenham skoruðu þeir Dimitar Berbatov og Robbie Keane.

     Ramos gerði breytingar á liðinu frá síðasta leik og má m.a. nefna að Zokora kom inn í liðið á ný eftir fjarveru vegna þátttöku í Afríkukeppninni. Cerny stóð á milli stanganna gegn sínum fyrri félögum en hann er á lánssamningi hjá Tottenham frá Slavia Prag. Tainio, Zokora, Woodgate og Chimbonda skipuðu varnarlínuna og Lennon, Jenas, Huddlestone og Malbranque spiluðu á miðjunni. Frammi voru þeir Keane og Berbatov. Bekkurinn var skipaður þeim Robison, Lee, Kaboul, King, Taarabt, O´Hara og Bent.

     Fyrsta mark kvöldsins lét ekki bíða lengi eftir sér. Á fjórðu mínútu sendi Huddlestone boltann inn fyrir á Jenas sem reyndi skot en komst þó ekki framhjá varnarmönnum Slavia Prag. Boltinn barst í áttina að Berbatov sem skaut að marki, gegnum alla vörn Slavia og framhjá Vaniak í markinu. Staðan orðin 0-1 og útlitið gott fyrir Tottenham sem var svo mun sterkara liðið í fyrri hálfleik og áttu leikmenn Slavia í mestu vandræðum með að byggja upp sóknir. Þegar hálftími var liðinn á leikinn jók Tottenham forskot sitt. Jenas gaf sendingu inn fyrir á Keane sem átti ekki í vandræðum með að koma boltanum framhjá Vaniak sem var kominn ansi langt út úr markinu. Var þetta 20. mark Keane á tímabilinu og staðan orðin 0-2 og stuðningsmenn gestanna kampakátir. Tottenham átti svo nokkur dauðafæri það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en Vaniak sá til þess að munur liðanna væri ekki meiri í hálfleik. Bebatov átti tvö góð skot að marki en Vaniak sýndi meistaratakta í markvörslunni. Jenas átti einnig gott færi en staðan var engu að síður 0-2 í hálfleik.

     Þjálfari Slavia Prag hefur vafalaust lesið vel yfir sínum mönnum í hálfleik enda kom allt annað lið til leiks í síðari hálfleik. Leikur þeirra batnaði til muna en Huddlestone átti þó fyrsta hættulega færið þegar þrumuskot hans small í þverslánni en stuttu síðar fékk Tavares leikmaður Slavia hálffæri en Cerny varði vel. Ramos kaus svo að gera sína fyrstu skiptingu þegar hann tók Tainio út af og setti O´Hara inná í staðinn. Chimbonda fór þá yfir í hægri bakvarðarstöðuna og O´Hara í þá vinstri. Þegar um 70.mínútur voru liðnar af leiknum kom svo önnur skipting Ramos en þá fór Keane af velli og Bent kom inná í hans stað. Stuttu síðar kom fyrirgjöf inn í teig Tottenham og Cerny hoppaði upp í boltann og Strihavka var ekki langt frá. Cerny misreiknaði hlutina þó eitthvað og missti boltann og Strihavka náði að koma honum í netið á sama tíma og hann og Cerny áttust við á skemmtilegan hátt. Eftir þetta mark kviknaði aldeilis líf í leikmönnum Slavia enda skildi einungis eitt mark liðin að. Bent átti nokkra spretti í átt að marki Slavia til að reyna að auka muninn á ný en eins og svo oft áður vantaði smá upp á að menn kláruðu færin sín. Hættulegasta færið kom úr aukaspyrnu sem Berbatov tók rétt fyrir utan teiginn en Vaniak rétt náði að verja. Slavia fékk einnig dauðafæri til að jafna leikinn þegar Brabec skallaði í þverslánna en allt kom fyrir ekki og leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham og telst það ágætt veganesti fyrir heimaleikinn.

 

Lið Spurs: Cerny, Tainio (O´Hara), Zokora, Woodgate, Chimbonda, Lennon, Jenas, Huddlestone, Malbranque, Keane (Bent), Berbatov.

Ónotaðir varamenn: Robinson, Lee, Kaboul, King, Taarabt, O´Hara, Bent.