Í tilefni af úrslitaleiknum í Carling Cup sunnudaginn 24.febrúar hvetur Tottenham klúbburinn stuðningsmenn liðsins að mæta á Ölver, Glæsibæ og horfa á leikinn í góðra manna hópi. Salurinn verður opnaður töluvert fyrir leik, eða kl.hálf eitt, svo stuðningsmenn geti spjallað saman og kynnst öðrum stuðningsmönnum. Leikurinn hefst svo klukkan 15:00 en útsending hefst hálftíma fyrr með ýtarlegri upphitun. Tilboð verða á veitingum fyrir klúbbmeðlimi gegn framvísun klúbbskírteinis þar til leik lýkur.
Við minnum fólk á að taka með sér skírteinin á leikinn en verðum þó með lista yfir félagsmenn ef einhver skyldi ekki hafa fengið skírteinið sitt eða hefur gleymt því heima. Einnig hvetjum við fólk til að mæta í Tottenham litunum og ef menn eiga fána eða aðra skemmtilega muni þá er velkomið að taka þá með!






