Harður skellur niður á jörðina

0
625

Það var ekki langlíft paradísarlífið í herbúðum Tottenham. Eftir góðan sigur á Chelsea síðustu helgi þar sem liðið hampaði Carling Cup titlinum fékk liðið harðan skell þegar það heimsótti Birmingham. Leiknum lauk með stórsigri Birmingham 4-1 en eina mark Tottenham skoraði Jermaine Jenas á lokamínútum leiksins.

     Ramos gerði fimm breytingar á liðinu frá leiknum gegn Chelsea síðustu helgi og má reikna með að hann hafi haft UEFA cup leikinn í vikunni í huga þegar hann valdi liðið enda fengu sumir leikmenn hvíld sem hafa leikið mikið undanfarið. Liðið var þannig skipað að Robinson var í marki og í vörninni spiluðu þeir Hutton, Kaboul, Chimbonda og Tainio en bæði Woodgate og King voru frá vegna meiðsla. Á miðjunni voru þeir Malbranque, Huddlestone, Zokora og O´Hara og frammi þeir Berbatov og Bent. Á bekknum sátu þeir Cerny, Gunter, Jenas, Lennon og Keane.

     Óhætt er að segja að liðið var ekki með hugann við leikinn frá fyrstu mínútu. Hvort sigurinn um síðustu helgi sat enn í mönnum er erfitt að segja til um en það tók Birmingham ekki nema 7 mínútur að komast yfir í leiknum. Birmingham fékk hornspyrnu og kom boltanum inn í teiginn á McFadden sem gaf beint fyrir hausinn á Forssell sem átti ekki í vandræðum með að koma boltanum framhjá Robinson í markinu. Staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Leikmenn Spurs voru þó ekki algjörlega aðgerðarlausir í leiknum og 6 mínútum síðar var O´Hara ekki langt frá því að jafna leikinn eftir góðan undirbúning frá Bent. Það varð þó ekkert úr því og enn eitt hættulegt færi kom við mark Tottenham eftir aukaspyrnu en fór naumlega framhjá. Þegar um tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum kviknaði smá líf í leikmönnum Tottenham. Berbatov, Bent, Huddlestone og O´Hara byggðu upp góða sókn sem endaði með góðri markvörslu frá Taylor og Malbranque komst einnig í upplagt færi sem var naumlega varið framhjá. Þegar 7 mínútur voru til loka fyrri hálfleiks átti O´Hara gott tækifæri til að jafna leikinn en Taylor sýndi góða takta og kom í veg fyrir að boltinn færi í netið. Staðan var því 1-0 í hálfleik.

     Ramos gerði tvær skiptingar strax í hálfleik enda lítið að ganga upp hjá liðinu. Malbranque og Tainio fóru af velli og inná komu Keane og Jenas. Chimbonda fór þá í vinstri bakvörðinn og leysti Tainio af og Zokora færði sig í miðvörðinn og leysti því Chimbonda af þar. Stuttu eftir upphaf hálfleiksins átti Robinson magnaða markvörslu þegar hann varði skot Forssell rétt yfir þverslánna og hélt því leiknum galopnum enda bara eitt mark sem skildi liðin að. Ramos breytti svo uppstillingu liðsins og virtist breyta í 3-4-3 til þess að reyna að jafna leikinn. Það gekk hins vegar ekki upp því á 54.mínútu jók Birmingham forskot sitt. Zokora braut á leikmanni Birmingham rétt fyrir utan vítateig og Larsson kom boltanum framhjá veggnum og beint í netið. Staðan því orðin 2-0 og útlitið ekki gott fyrir Tottenham. Fjórum mínútum síðar versnaði staðan enn meira þegar Larsson gaf fyrir markið og boltinn fór beint í Zokora og í áttina að markinu. Robinson varði boltann vel en Forssell var vel staðsettur, náði boltanum og kom honum í netið, annað mark hans í leiknum og þriðja mark Birmingham. Þegar 17.mínútur voru til leiksloka gerði Ramos síðustu skipting sína þegar Zokora fór af velli og Gunter kom í hans stað. Berbatov átti ágætis skot að marki sem Taylor vippaði yfir þverslánna og Huddlestone átti skot sem fór langt yfir markið. En í stað þess að minnka muninn bætti Birmingham bara við forskot sitt og var Forssell aftur á skotskónum og innsiglaði þar með þrennu sína í leiknum.  Jenas náði svo að koma boltanum yfir marklínu Birmingham á lokamínútum leiksins en það var of lítið og of seint til að breyta nokkru um gang leiksins. Tottenham hélt því tilbaka til London án nokkurra stiga en vonandi tekst strákunum að taka sig saman í andlitinu fyrir fimmtudaginn en þá fær liðið PSV í heimsókn í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum UEFA cup.

Lið Spurs: Robinson, Hutton, Kaboul, Chimbonda, Tainio(Jenas), Malbranque(Keane), Huddlestone, Zokora (Gunter), O´Hara, Bent, Berbatov. Ónotaðir varamenn:Cerny, Lennon.