Tottenham tilkynnti það í dag að Terry Dixon hefur yfirgefið félagið. Hinn 18 ára Dixon hefur lítið spilað undanfarin ár eftir að hafa orðið fyrir mjög slæmum hné meiðslum. Fyrst hlaut hann þau árið 2006 og var hann frá allt tímabilið 2006-2007. Hann varð svo fyrir því óláni að hljóta sömu meiðsli þegar hann var nýbyrjaður að spila á ný og hefur ekki spilað neitt á þessu tímabili. Ákvörðunin var gerð bæði af hans hálfu og félagsins með hagsmuni hans að leiðarljósi enda ekki víst hvernig bati hans mun verða. Við óskum þessum unga og mjög efnilega pilti velfarnaðar í framtíðinni og vonandi nær hann sér af meiðslum sínum.
Nýjustu fréttirnar
Hópferð Tottenhamklúbbsins – Nóvember 2026 (UPPSELT)
Daginn Þá er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi tímabilið 2026-2027Farið verður á leik Tottenham - Ipswich sem verður á Tottenham Hotspur Stadium,...







