Fyrstu kaup sumarins

0
693

Staðfest hefur verið á heimasíðu Tottenham að félagið hafi náð samkomulagi við Dinamo Zagreb um kaup á Luka Modric. Kaupverðið er ekki gefið upp en það er talið vera á bilinu 15-20 milljónir punda, og gæti hann því verið dýrasti leikmaður félagsins. Einnig hefur verið náð samkomulagi við leikmanninn sjálfan en hann á þó eftir að fara í læknisskoðun og sækja um atvinnuleyfi en gangi það allt saman eftir, skrifar hann undir samning við félagið og verður því fyrsti leikmaðurinn sem keyptur er í sumar. 

Modric, sem kemur frá Króatíu, er 22 ára og spilar stöðu miðjumanns. Hann getur bæði spilað á miðri miðjunni sem og vinstri kantinum. Hann hefur spilað 87 leiki fyrir Zagreb á þeim þremur árum sem hann hefur verið hjá þeim og skorað í þeim 25 mörk. Hann er einnig landsliðsmaður og hefur leikið 24 A-landsleiki þrátt fyrir ungan aldur. Í þeim hefur hann skorað 3 mörk.

Við vonum að allt gangi sem skyldi við læknisskoðun og atvinnuleyfið og bjóðum hann velkominn til Tottenham.