Tottenham gerði enn eitt jafnteflið þegar þeir heimsóttu Wigan á JJB Stadium. Berbatov kom Tottenham yfir í leiknum en Heskey jafnaði leikinn og lokastaðan því 1-1. Er þetta þriðja 1-1 jafnteflið hjá Tottenham í röð og frammistaða leikmanna ekki eins og best verður á kosið.
Ramos gerði nokkrar breytingar á liðinu en þó engar róttækar breytingar. Cerny var sem fyrr í markinu og Hutton, Dawson, Zokora og O´Hara spiluðu í vörninni fyrir framan hann. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Huddlestone og Malbranque og frammi sem fyrr þeir Keane og Berbatov. Á bekknum sátu þeir Forecast, Gilberto, Rocha, Tainio og Bent.
Tottenham hóf leikinn af fullum krafti á frekar slæmum velli þeirra Wigan manna. Robbie Keane fékk ágætis færi á upphafs mínútunum en Kirkland sá við honum. Eftir sex mínútna leik sendi Huddlestone boltann á Lennon sem þaut upp hægri vænginn og gaf góðan bolta fyrir markið. Boltinn barst á endanum til Berbatov sem skaut boltanum framhjá Kirkland í markinu og skoraði þar með 23 mark sitt á tímabilinu og er því orðinn markahæsti maður liðsins þessa leiktíðina. Marcus Bent átti svo ágætis færi á hinum enda vallarins en Cerny varði skot hans. Á 12. mínútu gat Cerny þó lítið gert þegar Heskey skaut boltanum framhjá honum eftir að hafa leikið á Zokora og þurfti Cerny því að hirða boltann úr netinu. Staðan orðin 1-1. Palacios reyndi svo að koma Wigan yfir en Cerny tókst að verja boltann. Þegar vel var liðið á fyrri hálfleik var brotið á Berbatov inni í vítateig Wigan manna þegar Melchiot hrinti honum inni í teignum. Dómarinn og aðstoðardómari hans virðast ekki hafa séð atvikið því þeir dæmdu ekkert en sjónvarpsupptökur gefa í skyn að þarna hefði vítaspyrna verið sanngjarn dómur. Malbranque og Berbatov fengu svo fín færi undir lok fyrri hálfleiks og Taylor, leikmaður Wigan, varði boltann á línu eftir skalla frá Dawson. En ekki urðu mörkin fleiri í fyrri hálfleik og staðan því jöfn 1-1.
Líkt og í fyrri leikjum voru það andstæðingarnir sem hófu seinni hálfleikinn mun betur heldur en leikmenn Tottenham. Wigan fékk aukaspyrnu á hættulegum stað en varnarveggurinn stóð fyrir sínu og á hinum enda vallarins var Kirkland með allt á hreinu þegar Lennon skaut að markinu. Litlu munaði að samspil Berbatov og Keane ylli hættulegri sókn en það heppnaðist ekki í þetta skiptið. Hættulegasta færi seinni hálfleiksins fengu svo Wigan menn þegar Marcus Bent skaut í þverslánna eftir slæma varnarvinnu Tottenham manna. Jenas og Heskey fengu svo sitthvort færið en komu hvorugur boltanum yfir línuna. Eina breytingin sem Ramos gerði á liðinu í þessum leik kom á 72.mínútu þegar Bent kom inná fyrir Keane. Breytingin skilaði þó ekki árangri og hvorugu liðinu tókst að hirða öll stigin í leiknum og skiptu því stigunum á milli sín. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
Lið Spurs: Cerny, Hutton, Dawson, Zokora, O´Hara, Lennon, Jenas, Huddlestone, Malbranque, Berbatov, Keane(Bent). Ónotaðir varamenn: Forecast, Gilberto, Rocha, Tainio






