Tottenham vann fyrsta sigur sinn á tímabilinu þegar þeir tóku á móti pólska liðinu Wisla Krakow í Uefa cup á White Hart Lane. Var þetta fyrri leikur liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Uefa cup en seinni leikurinn er í Póllandi 2. október. Leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham og verður leikurinn því erfiður í Póllandi þar sem markamunurinn er sáralítill. Mörk Tottenham í leiknum skoruðu þeir David Bentley og Darren Bent en sá síðarnefndi skoraði einnig annað mark sem var ranglega dæmt af.
Ramos þurfti að gera breytingar á liðinu frá síðasta deildarleik þar sem Corluka og Pavlyuchenko mega hvorugir taka þá í evrópuleikjunum eftir að hafa spilað fyrir fyrrum lið sín í evrópuleikjum. Á milli stanganna í markinu stóð Gomes sem fyrr. Vörnin var skipuð þeim Gunter, Woodgate, King og Bale og á miðjunni byrjuðu þeir Bentley, Jenas, Zokora og Lennon. Giovani lék sem tengiliður milli miðju og sóknar en Bent lék einn frammi. Á bekknum sátu þeir Sanchez, Huddlestone, Gilberto, Dawson, Ekotto, O´Hara og Campbell.
Leikmenn Tottenham komu nokkuð ákveðnir til leiks enda orðnir leiðir á árangri síðustu vikna og því hungraðir í sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Bentley hóf leikinn sprækur á hægri kantinum og átti ágætisfyrirgjöf sem Pawelek í markinu náði að grípa. Á 24.mínútu tók hann hornspyrnu og gaf á Woodgate á fjærstönginni sem skallaði að marki en markvörður Wisla náði að verja vel. Sjö mínútum síðar átti hann góða sendingu á Bent sem komst einn á móti markverði Wisla og en Pawelek tímasetti úthlaup sitt vel og náði til boltans. En á 33.mínútu sá Bentley bara sjálfur um að koma Tottenham yfir í leiknum. Lennon hljóp upp vinstri kantinn og inn í teiginn þar sem hann gaf boltann fyrir markið og Bentley var vel staðsettur og skaut boltanum í vinstra hornið. Staðan því orðin 1-0 fyrir heimamenn og gífurleg fagnaðarlæti brutust út á White Hart Lane. En það breyttist fljótt því strax í næstu sókn náði pólska liðið að svara fyrir sig. Boguski komst fram hjá Bale á hægri kantinum, gaf á Brozek sem renndi boltanum á Jirsak þar sem hann var einn og óvaldaður og kom boltanum framhjá Gomes í markinu. Lítið markvert gerðist svo það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og var staðan því jöfn 1-1 í hálfleik.
Leikmenn Spurs byrjuðu seinni hálfleikinn betur en gestirnir og bæði Bentley og Giovani áttu góð færi til að koma Tottenham yfir. Darren Bent skoraði svo fullkomlega löglegt mark sem var ranglega dæmt af. Bale sendi boltann á Jenas á vinstri helmingi vítateigsins. Sendingu hans fyrir markið potaði Bent svo í markið en línuvörðurinn dæmdi rangstöðu á Jenas og og markið því dæmt af. Endursýning á atvikinu sýnir að Jenas var fullkomlega réttstæður þegar sendingin kom frá Bale og dómurinn því rangur. En það var lítið við því að gera og staðan því enn jöfn. Á 57.mínútu ákvað Ramos að gera breytingu á liðinu og gerði tvöfalda skiptingu. Gunter og Lennon fóru af velli og inná komu O´Hara og Campbell, en þetta var fyrsti leikur hans fyrir liðið eftir að hafa komið á láni frá Manchester United. Campbell tók þessu verkefni af mikilli alvöru og var strax hættulegur fyrir framan markið og barðist vel til að vinna boltann. Hann kom svo við sögu á 73.mínútur þegar hann fékk langan bolta sem hann móttók glæsilega, lék á varnarmann pólska liðsins og gaf boltann fyrir markið á Bent sem skallaði boltann í netið. Staðan orðin 2-1 fyrir Tottenham. Stuttu síðar munaði svo litlu að Campbell sjálfur næði að skora eftir fyrirgjöf frá Bale á vinstri kantinum. En varnarmaður Wisla Krakow rétt náði til boltans rétt á undan Campbell. Mörkin urðu ekki fleiri þetta kvöldið og er markamunurinn á liðunum ekki mikill og verður því erfitt verkefni fyrir Spurs að fara til Póllands. En leikmenn verða bara að taka því verkefni eins og öðrum og leggja upp með það markmið að sigra þann leik.
Lið Spurs: Gomes; Gunter (O’Hara), Woodgate, King, Bale, Bentley, Zokora, Jenas, Lennon (Campbell), Giovani (Assou-Ekotto), Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Huddlestone, Gilberto, Dawson






